Litir augans í Svavarssafni

Opnun á myndlistarsýningu Erlu Þórarinsdóttur í samtali við verk Svavars Guðnasonar

6. júl. 2021

Laugardaginn 3. júlí 2021 opnaði sýningin Litir augans í Svavarssafni. Sýningin er samspil verka Erlu Þórarinsdóttur og Svavars Guðnsonar. Opnunin var fjölsótt og gestir nutu ljóss og lita í sumaryl Hornafjarðar. Erla Þórarinsdóttir myndlistarmaður, Jón Proppé sýningarstjóri og Auður Mikaelsdóttir listfræðingur tóku á móti gestum og buðu upp á samtal um sýninguna. Svavarssafn þakkar öllum gestum nær og fjær fyrir komuna og ánægjulega samveru við opnunina. 

Svavarssafn geymir gott safn af verkum Svavars Guðnasonar sem var einn af merkustu frumkvöðlum í íslenskri myndlist á síðustu öld. Á sumarsýningunni í ár teflir Erla Þórarinsdóttir litríkum málverkum sínum saman við litaheim hins látna meistara.

Svavar fæddist og ólst upp í Hornafirði og litadýrðin í málverkum hans speglar birtuna í sveitinni undir Vatnajökli, þótt hann hafi seinna dvalið lengi í Danmörku og meðal annars sýnt í París. Erla sækir líka liti sína í náttúruna, bæði hina ytri og innri náttúru, því orkustöðvarnar í líkama okkar og anda endurspegla birtuna í umhverfinu og alla litina sem þar teiknast fram.

Í sýningarskrá segir Jón Proppé, sýningarstjóri: „Hjá Erlu endurspeglar ljósheimurinn líka hinn innri heim og átök litanna endurspegla átökin sem eiga sér stað í sál okkar og líkama. Í okkur býr bæði ljós og myrkur, andstæðir litir og samstæðir, harka og mildi, fegurð og ljótleiki. Það er svo ævistarf okkar að reyna að koma öllu þessu í einhvers konar jafnvægi án þess að tapa við það orkunni, án þess að úr verði tóm lognmolla. Orkustöðvar líkama og sálar eru eins og litir í málverki og það er jafn erfitt að finna í þeim samhljóminn. Gott málverk er eins og góð manneskja.“

Á fáum stöðum birtist litheimur náttúrunnar með slíkum mikilfengleik og þegar sumarsólin roðar jökulinn og sveitina í Hornafirði. Sýning Erlu og Svavars stendur til 30. september og svo listunnendum gefst gott tækifæri til að upplifa þar samspil myndlistarinnar við töfra náttúrunnar.