Barnastarf 2019

Maciej Rózanski • 26. september 2019

Skemmtilegt barnastarfssumar 2019

Barnastarf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2019


Hefð er fyrir því að Menningarmiðstöð Hornafjarðar standi fyrir fræðslu og skemmtiferðum fyrir börn frá sjö ára aldri. Í sumar var þar engin breyting á og voru farnar 10 ferðir.


Ferðirnar tókust allar mjög vel og vorum við mjög heppin með veður í sumar. Börnin stóðu sig öll með prýði og hafa greinilegan áhuga á umhverfi sínu.


Í barnastarfi sumarsins skoðuðum við nærumhverfið og fræddumst um náttúruna, fórum í bátsferð út í Mikley, heimsóttum Flatey og Papós. Björn G. Arnarson fór með börnin út í Ósland og sagði þeim frá lífríkinu og lífsháttum fugla og tókst honum að gera alla mjög áhugasama. Steinunn Hödd starfsmaður Vatnajökulsþjóðgarðs fór með okkur í ferð um þjóðgarðinn og sýndi áhugasömum börnum lífríkið í nágrenni Haukafells. Farið var inn að Hólmi í Laxárdal að skoða minjar og lúruveiðin með Jóni Þorbirni var vinsæl að vanda og voru farnar 2 ferðir þann daginn. Ágætis afli var í ferðunum. Óvissuferðin tókst mjög vel þar sem farið var í Haukafell þar gæddu börnin sér á pylsum og svala.


Starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar þakkar öllum þeim sem tóku þátt í ferðunum og öllum þeim sem lögðu lið. Svona starf getur ekki gengið nema með velvilja samfélagsins og hans njótum við svo sannarlega.

Sérstakar þakkir fá: Fallastakkur ehf., starfsmenn Flateyjar, Björn Arnarson, Steinunn Hödd Harðardóttir, Jón Þorbjörn Ágústsson, starfsmenn Hafnarinnar og bílstjórar.


Hlökkum til að sjá sem flesta með okkur á næsta ári.


Starfsfólk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. 


Myndir úr sumarstarfi barnastarfsins má finna hér: http://hornafjmenningvefur.eplica.is/hagnytar-upplysingar/myndasafn/



Eyrún Helga Ævarsdóttir. 


Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir 30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.
Eftir Dagur Snær Guðmundsson 23. júní 2026
Það er ótrúlega gaman að sjá allar minningarnar lifna við og fá innsýn í stemninguna, fólkið og söguna sem Humarhátíðin hefur skapað í gegnum árin.
Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir 22. júní 2026
Alþjóðlegi jafnréttiskólinn (GRÓ GEST: Gender Equality Studies & Training Programme under the auspices of UNESCO), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar, er gestgjafi sýningarinnar Aldrei útskrifuð – Ætíð minnst, sem fer fram á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá og með 18. Maí 2026.