DEILDIR

Rannsóknir


opnunartími

Eftir samkomulagi við safnvörð

staðsetning

Nýheimum, Litlubrú 2, 780 Hornafirði

hafa samband

Sími: 470 8058


Netfang: siddy@hornafjordur.is


Meginhlutverk rannsóknarsviðs er skráning jarðlægra menningarminja í Sveitarfélaginu Hornafirði. Megintilgangur slíkrar skráningar er að kynna og miðla sögu nærumhverfisins auk þess að stuðla að varðveislu minja í sínu umhverfi. 

Jarðlægar minjar, ritaðar heimildir og aðrar frásagnir eru vitnisburður um mannvist frá fyrri tíð. Þær segja okkur merka sögu búskaparhátta, samgangna og lífsbaráttu fólks við náttúruöflin, en það á ekki síst við hér í sveitum fyrrum Austur-Skaftafellssýslu. Verkefnum er ætlað að draga fram þá sögu og að vitneskjan um landfræðilega staðsetningu minjastaða glatist ekki. Það stuðlar að viðhaldi þekkingar, ýtir undir aukna umhverfisvitund og áhuga heimamanna og gesta á menningararfi sveitarfélagsins. Þannig tryggjum við bönd milli fortíðar og nútíðar.


Í lögum um menningarminjar nr. 80/2012 er kveðið á um að skráning fornleifa skuli fara fram í aðdraganda skipulagsgerðar. Fornleifar eru skráðar á vettvangi samkvæmt skráningarstöðlum Minjastofnunar Íslands svo skráningin teljist fullnægjandi. Á deiliskipulagsstigi gerir stofnunin auknar kröfur til vettvangsvinnu við fornleifaskráningu; með ítarlegri yfirferð innan skráningarsvæðis, uppmælingu minja og skráningu þeirra.



Samkvæmt minjalögum er einnig kveðið á um að húsakönnun skuli fara fram áður en gengið er frá aðalskipulagi eða deiliskipulagi. Húsaskráning er undanfari húsakönnunar og byggist á sagnfræðilegum heimildum og ítarlegri vettvangskönnun, þar sem núverandi ástandi bygginga er lýst. Húsakönnun er byggingarlistaleg og menningarsöguleg könnun, byggð á sögulegum heimildum og varðveislumati. Með gerð húsakannana fæst yfirlit yfir byggingararfinn sem leggur grunn að því að unnt sé að móta stefnu um verndun hans.

Frá árinu 2020 hefur Rannsóknarsvið unnið að veigamiklu verkefni í samvinnu við Þórbergssetur að skráningu gamalla og yfirgefinna bæjarstæða í sveitum Austur-Skaftafellssýslu. Lokið er skráningu í Suðursveit og á Mýrum og kynnt var með veggspjaldasýningum á Höfn og í Þórbergssetri. Yfir stendur skráning í Lóni og Nesjum, ásamt Öræfasveit. Verkefnið nefnist Búsetuminjar í Austur-Skaftafellssýslu og er miðlað á vefsíðunni:
www.busetuminjar.is