Sögur án orða

31. mars 2021 - 01. maí 2021

Dr. Soffía Auður Birgisdóttir er einn okkar fremstu bókmenntafræðinga

og er órjúfanlegur hluti af íslensku menningarlífi. Hún er sérfræðingur í Þórbergi Þórðarsyni og gegnir stöðu fræðimanns við Rannsóknarsetur Háskóla á Höfn í Hornafirði. Soffía Auður hefur helgað líf sitt bókmenntum og skilið eftir sig spor víða innan ritlistar. Með markvissu og óeigingjörnu starfi í þágu bókmenningar hefur henni hlotnast heldur óvenjulegur safnkostur en íslenskir rithöfundar hafa gjarnan launað henni styrka handleiðslu með skapandi hætti. Sýningin er lof til myndmáls.


Á sýningunni eru verk eftir :


Kristínu Ómarsdóttur

Vigdísi Grímsdóttur

Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur

Sjón

Ísbjörgu

Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur

Hermann Stefánsson

Bjarna Bjarnason

Jón Karl Helgason

Hallgrímur Helgason (mynd í eigu Sæmundar Helgasonar)


Menningarmiðstöðin þakkar Soffíu Auði fyrir lánið á verkunum.


Sýningin opnaði 31. mars og stendur fram í maí.