Svavarssafn


opnunartími

Vetraropnun

15.maí - 15.seftember

Mán - Fös
-
Lau - Sun
Lokað

Vor- og haustopnun

1.mars - 31.október

Mán - Fös
-
Lau - Sun
Lokað

Sumaropnun

1.júní - 31.ágúst

Mán - Fös
-
Laugardagur
-
Sunnudagur
Lokað

staðsetning

Ráðhús, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði

listasafn@hornafjordur.is

hafa samband

Birta Guðjónsdóttir
Safnstjóri

Sími: 8658719

Birta@hornafjordur.is

Áhugasömum er velkomið að hafa samband við safnstjóra varðandi heimsóknir utan auglýstra opnunartíma.

Svavarssafn var opnað við hátíðlega athöfn föstudaginn 24. júní árið 2011. Safnið var stofnað til heiðurs hinum virta íslenska myndlistarmanni Svavari Guðnasyni (1909-2008). Safnið er staðsett á jarðhæð Ráðhúss Hornafjarðar, á Höfn.  Verk Svavars voru sýnd á opnunarsýningu safnsins en sveitarfélagið hafði þá nýverið fengið töluverðan fjölda listaverka Svavars að gjöf frá ekkju hans, Ástu Eiríksdóttur (1912-2008). Safneign Svavarssafns telur um 1.000 listaverk. Auk verka úr safneign þá stendur Svavarssafn að sýningaverkefnum á samtímalist íslenskra og alþjóðlegra listamanna, sem auðga enn frekar menningarlandslag héraðsins og víðar.

Hlutverk Svavarssafns er að safna og miðla listaverkum, með sérstakri áherslu á tengsl við austur-skaftfellska list. Annað meginhlutverk Svavarssafns er að skrá, varðveita og miðla verkum í eigu sveitarfélagsins og stofnana þess. Listaverk Svavarssafns skulu að staðaldri vera til sýnis í sem flestum stofnunum sveitarfélagsins auk þess sem safnið efnir til sérstakra sýninga. Svavarssafn starfar eftir stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, sem skilgreint er af Safnaráði sem opinbert listasafn, og gildandi lögum um starfsemi safna. Einnig fylgir það lögum um skil á menningarverðmætum, svo og þjóðminjalögum.

Einstök safneign Svavarssafns er grunnforsenda þess að safnið geti starfað. Kjarninn í safnkosti Svavarssafns samanstendur af verkum Svavars Guðnasonar og fleiri hornfirskra listamanna og býr safnið nú yfir 1.000 verkum, sem sýnd eru eftir bestu getu í sýningarsölum safnsins auk þess sem verk eru lánuð til annarra stofnanna sveitarfélagsins, svo sem til heilsugæslustöðvar, ráðhúss, grunnskóla og framhaldsskóla.

Svavarssafn kappkostar að kynna starfsemi sína fyrir sem flestum og þjóna gestum sínum sem best. Sýningar safnsins taka mið af markmiðum að því að auka aðgengi og áhuga almennings á listum. Svavarssafn stendur fyrir fjölbreyttum sýningum á verkum úr safneign, frá öðrum söfnum, stofnunum eða einstaklingum.

Listasafn Svavars Guðnasonar