Bókasafn

opnunartími
Vetraropnun
1.september - 31.maí
- Mán - Fim
- -
- Fös - Lau
- -
- Sunnudagur
- Lokað
Sumaropnun
1.júní - 31.ágúst
- Mán - Fös
- -
- Lau - Sun
- Lokað
staðsetning
Nýheimum, Litlubrú 2, 780 Hornafirði
hafa samband
Bókasafn Austur- Skaftafellssýslu starfar í samræmi við lög um almenningsbókasöfn (nr. 36/1997) og gildandi stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Hlutverk þess er að jafna aðgang íbúa og gesta sveitarfélagsins að upplýsingum, þekkingu og afþreyingu. Þjónusta safnsins nær til allra án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoðana, trúar, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu. Auk þess að vera almennings bókasafn þá er safnið einnig skólabókasafn Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu ásamt því að vinna með skólabókasöfnum Grunnskóla Hornafjarðar.
Auk almennra útlána bóka hefur undanfarin ár verið lögð áhersla á að bókasafnið sé aðgengilegt íbúum sveitarfélagsins og eftirsóttur samkomustaður íbúa. Hjá því verður ekki litið að breyting er að verða á störfum bókasafna í landinu almennt og þau færast óðum í þá átt að verða menningarhús eða félagsmiðstöðvar fyrir samfélagið í heild sinni. Því hefur mikil áhersla verið lögð á margskonar afþreyingu sem hægt er að iðka inni á safninu. Algengast er að verkefnin henti börnum og er það meðvituð ákvörðun bókavarðar að horfa sérstaklega til þess hóps þar sem þau eru framtíðar viðskiptavinir safnsins og mikilvægt að börnin læri að umgangast safnið sem hluta af sínu daglega lífi. Þar með aukast líkurnar á að þau nýti sér safnið í framtíðinni. Oftast nær fylgja foreldrar með börnum á safnið og segja má að hið sama gildi um þá og börnin. Foreldrarnir læra að umgangast safnið á ný og átta sig á þeirri þjónustu sem safnið veitir.
Sem dæmi um reglulega viðburði bókasafnsins má nefna krílahittinga, prjónakaffi, föndurstundir, rithöfundakvöld og aðventuhátíðir. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á bókasafninu.
Saga Bókasafns
Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Elsta bókasafn Austur-Skaftafellssýslu hét Austur-Skaftafellssýslu lestrarfélag og var stofnað af séra Þórarni Erlendssyni í Bjarnanesi og fleiri prestum árið 1837. Þetta gamla lestrarfélag, sem jafnframt er fyrsta félag sem sögur fara af í Austur-Skaftafellssýslu hafði að markmiði að útvega bækur fyrir félagsmenn sína, aðallega presta, og virðist aðeins hafa starfað til ársins 1844. Til eru gerðarbók og samþykktir félagsins og virðist lestrarfélagið hafa verið með fyrstu lestrarfélögum á Íslandi.
Fljótlega eftir skiptingu Nesjahrepps í tvö sveitarfélög árið 1946 var bókakosti lestrarfélagsins skipt milli Nesjahrepps og Hafnarhrepps. Um 1959 var tekið upp nafnið Héraðsbókasafn Austur-Skaftafellssýslu og yfirtók það bókakost Sýslubókasafnsins og þann hluta bókakosts Lestrarfélags Nesjamanna sem hafði fallið Hafnarhreppi í skaut við hreppaskiptin. Hefur safnið frá þeim tíma gegnt hlutverki miðsafns fyrir Austur-Skaftafellssýslu og bæjarbókasafns fyrir Höfn. Snemma eða fljótlega eftir að Höfn fór að byggjast, hafði einn af frumbyggjum Hafnar, Guðmundur Sigurðsson söðlasmiður, forgöngu um stofnun Lestrarfélags Nesjamanna og var safnið til húsa á heimili hans, Hóli (Guðmundarhúsi) á Höfn allt til ársins 1921. Í reglum, sem safninu voru þá settar segir að tilgangur safnsins sé „að útvega og tryggja hreppsbúum aðgang að góðum og gagnlegum bókum.“ Einnig skyldi hreppsnefnd leggja safninu til peninga til bókakaupa.
Þegar félagsheimilið Sindrabær var tekið í notkun árið 1964 fluttist héraðsbókasafnið þangað inn á efri hæð og var nú talið hafa fengið „fastan samastað“. En það stóð ekki lengi því árið 1974 fluttist safnið enn um set og fór þá í nýbyggt ráðhús hreppsins. Bókasafnið var til húsa í ráðhúsinu til 1981, fór þá í Heppuskóla en fluttist svo að Hafnarbraut 36, fyrst í rýminu þar sem Sparisjóðurinn hafði lengst af aðsetur og svo seinna þar sem Lögreglustöðin er í dag. Árið 2002 flutti safnið enn einu sinni og þá í nýbyggða Nýheima þar sem það er enn í dag. Má því segja að safnið hafi loksins fengið sinn "fasta samastað". Nýheimar hýsa m.a. Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, Rannsóknarsetur HÍ á Hornafirði, Náttúrustofu Suðausturlands, og fleiri stofnanir.



