• Safnarad_mynd

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hlýtur styrki frá Safnaráði

3. feb. 2026

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hlaut úthlutun þriggja styrkja úr aukaúthlutun Safnaráðs. Í aukaúthlutun Safnaráðs árið 2025 voru veittir alls 70 styrkir til 37 viðurkenndra safna. Þar af fóru 50 styrkir til símenntunarverkefna og námskeiðahalds og 20 styrkir
til stafrænna kynningarmála.

Verkefnið Stafræn miðlun og hlaðvarp fyrir Kvískerjasýningu í Gömlubúð, í flokki styrkja til stafrænna kynningarmála, hlaut 250.000 kr. styrk. Verkefnið felst í því að taka hlaðvarpsviðtöl við fólk sem tengist Kvískerjum og fanga frásagnir þeirra sem upplifðu fólkið og staðinn á sínum tíma. Einnig verða tekin viðtöl við þá sem koma að Kvískerjasýningunni sem er í undirbúningi og verður sett upp í Gömlubúð. Styrkurinn verður aðallega nýttur til kaupa á hlaðvarpsbúnaði, en hingað til hefur verið stuðst við lánsbúnað.

Verkefnið Farskóli FÍSOS 2026, í flokki símenntunar fyrir starfsmenn safna, hlaut 300.000 kr. styrk til að tryggja endurmenntun og fræðslu starfsmanna með þátttöku í Farskóla FÍSOS á árinu. Endurmenntun og fræðsluviðburðir af þessu tagi eru afar dýrmætir fyrir stofnun á borð við Menningarmiðstöðina, þar sem hver starfsmaður gegnir mörgum hlutverkum, hefur breytt verksvið og þarf því að afla sér fagþekkingar á fjölbreyttum sviðum. Farskóli síðasta árs var haldinn á Selfossi, þar sem nýr forstöðumaður sótti fjölbreytt erindi um varðveislu og sýningargerð, meðal annars. Næsti Farskóli verður haldinn á Ísafirði á þessu ári og því um langan veg að fara í þetta skipti.

Verkefnið Vistaskipti og jafningjafræðsla, í flokki vistaskipta milli safna, hlaut 267.000 kr. styrk. Hanna Dís Whitehead, nýr starfsmaður byggðasafnsins, mun sækja sér fræðslu í vistaskiptum hjá Þjóðminjasafninu nú á vormánuðum. Þar mun hún leggja áherslu á að kynna sér fjölbreytt verkefni safnsins, fræðast um geymslur og verkferla, auk þess að afla sér þekkingar sem nýtist við væntanlega Kvískerasýningu í Gömlubúð og efla tengslanet sitt í starfi.