Gjöf til Menningarmiðstöðvarinnar
Maciej Rozanski • 12. nóvember 2020

Þann 11.11.2020 barst Menningarmiðstöðinni óvænt og falleg sending frá Ragnari Önundarsyni.
Böggullinn inniheldur veglegt safn bréfa og skissa til afa Ragnars, Ragnars Ásgeirssonar (1895-1973), frá Höskuldi Björnssyni (1907-1963) listmálara frá Dilksnesi. Bréfin endurspegla þrönga stöðu Höskuldar sem listamanns og varpa ljósi á ómetanlegan stuðning, vinarþel og velgjörðir Ragnars í garð Höskulds. Menningarmiðstöðin tekur við rausnarlegri gjöf Ragnars af djúpu þakklæti. Verður safnið skráð og varðveitt í Héraðsskjalasafni Austur Skaftafellssýslu.

Eftir Tjörvi Óskarsson
•
16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.

