Hanna Dís Whitehead kynnir hönnun sína
Maciej Rozanski • 11. október 2019

Hanna Dís vöruhönnuður frá Studio Hanna Whitehead í Nesjum ætlar í föstudagshádegi að kynna hönnun sína sem drifin er áfram af ferli, rannsóknum og efnistilfinningu.
Hanna Dís vöruhönnuður frá Studio Hanna Whitehead í Nesjum ætlar í föstudagshádegi að kynna hönnun sína sem drifin er áfram af ferli, rannsóknum og efnistilfinningu. Hún hefur meðal annars hannað húsgögn, keramík hluti og ýmsan textíl. Hanna hefur haldið sýningar og viðburðir á Íslandi og erlendis t.d á Þjóðminjasafni Íslands, Kjarvalsstöðum, Safnahúsinu og Hönnunarsafni Eistlands. Einnig hefur hún átt í samstarfi við erlend fyrirtæki og hönnuði.
Mötuneyti verður opið og er mælst til þess að fólk sem vill kaupa annaðhvort súpu eða salat, eða bæði, staðfesti það í pósti til motuneyti@fas.is
Súpa - 1000 kr
Salat - 1000 kr

Eftir Tjörvi Óskarsson
•
16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.

