Hús Kveðja- Dagskrá

Maciej Rozanski • 17. maí 2022

Nánar um sýninguna og viðburði tengda henni

Laugardaginn 21. maí opnar sýningin Hús Kveðja í Svavarssafni. ( Sýningarskrá PDF hér ). Listamaðurinn er Eva Bjarnadóttir. Eva hlaut menningarverðlaun Austur-Skaftafellssýslu árið 2018 fyrir menningarstarf sitt á Fagurhólsmýri þar sem hún býr. Hús Kveðja er nátengd heimahögum hennar og hefðum þar, en nafnið vísar í hefð sem var fyrir því í Öræfum að kveðja hina látnu heima hjá þeim áður en jarðarförin sjálf fór fram. Hús Kveðja snýst þó ekki um látna manneskju heldur hús sem gengur nú í endurnýjun lífdaga, en frá miðjum sjötta áratug fram á sjöunda áratug síðustu aldar var Kaupfélag Skaftfellinga með vöruhús og verslun undir Blesakletti á Fagurhólsmýri. Breyttir samgönguhættir leiddu á endanum til þess að verslunin var færð og kaupfélagsdeild Öræfinga gekk úr Kaupfélagi Skaftfellinga og í KASK (Kaupfélag Austur-Skaftfellinga).

Þetta hús og þetta tímabil er Evu innblástur í sýninguna. Að þessu sinni býður Svavarssafn þó ekki einungis upp á einfalda opnun, heldur verður dagskrá sem teygir anga sína alla leið á Fagurhólsmýri. Hún er svohljóðandi:


21. Maí- Opnun á Svavarssafni

28. Maí- Ganga út í Salthöfða
(tveir skór) og húskveðja í Gömlubúðinni á Fagurhólsmýri. Ganga klukkan tvö, en húskveðja klukkan hálf-fimm. Viðburðirnir fara fram á Fagurhólsmýri. Eva leiðir gönguna, en fleiri munu lesa ljóð og segja frá á leiðinni. Steinunn Björg Ólafsdóttir, Einar Bjartur Egilsson, Gunnlaugur Bjarnason og María Sól Ingólfsdóttir flytja texta og syngja á húskveðjunni.


2. Júní- Lesið í Hús.
Umhverfisheimspekingurinn Guðbjörg R. Jóhannesdóttir og listakonan og rithöfundurinn Auður Hildur Hákonardóttir spjalla ásamt öðrum gestum um fagurfræði og fleira. Klukkan 20:00 í Svavarssafni.

7. Júní- Again the sunset.
Inga Huld Hákonardóttir og Yann Leguay flytja gjörning sinn í Svavarssafni. Verkefnið er samstarf Svavarssafns og listahátíð í Reykjavíkur. Þess má geta að þó Inga Huld sé búsett út í Brussel sem mætti kalla höfuðborg danslistarinnar í Evrópu, þá er hún fædd á Höfn. Klukkan 20:00 í Svavarssafni.

10. Júní-Kveðjuhóf í Svavarssafni klukkan 15:00. Um þennan viðburð þarf ekki að segja margt annað en að pönnukökur eru í boði handa gestum.


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.