SVAVARSSAFN

Svavar Guðnason er einn helsti brautryðjandi abstrakt-málverksins á Íslandi. Verk hans hafa farið sigurför um heiminn og láta engan ósnortin.

SVAVARSSAFN ART MUSEUM
Þann 18. nóvember árið 1909 fæddist Svavar Guðnason á Höfn í Hornafirði. Þorpið var þá einungis tæplega tíu ára gamalt og bara fimm hús, en tveimur árum áður höfðu foreldrar Svavars þau Guðni og Ólöf reist sitt hús, Heklu, þar sem nú var rekið gistihús og greiðasala. Guðni faðir Svavars var menntaður skósmiður en í Heklu var mikið um að vera, og haldnar þar samkomur og jafnvel dansleikir.

Árið 1935 hélt Svavar út til náms við Konunglegu listakademíuna í Kaupmannahöfn. Það hafði þó átt sér langan aðdraganda. Á Hornafirði var mikill áhugi á málaralistinni síðan Ásgrímur Jónsson heimsótti Höfn árið 1912 og málaði landslagsverk, búsettur í tjaldi upp á Hrossabitahagahól. Varð hann innblástur fyrir ýmsa búsetta á Hornafirði til að panta sér liti og pensla og byrja að mála sjálfir t.d. Jón Þorleifsson frá Hólum, Höskuld Björnsson frá Dilksnesi og Bjarna Guðmundsson sem síðar varð kaupfélagsstjóri. Höfðu allir þessir menn þó nokkur áhrif á Svavar, en hann vann í kaupfélaginu hjá Bjarna og málaði með honum. Höskuldur var jafnaldri Svavars og gáfu þeir t.d. saman út héraðsblaðið Velvakanda, en Höskuldur er helst þekktur fyrir fuglamyndir sínar í dag. Jón Þorleifsson var nokkuð eldri en Svavar og Höskuldur, og var fluttur til Reykjavíkur um það leyti sem Svavar er að kynnast málaralistinni, en hann er ekki síður áhrifavaldur. Jón var atvinnu-listmálari, skrifaði listgagnrýni í morgunblaðinu og átti stóran þátt í stofnun Listamannaskálans, fyrsta sýningarrýmisins sem alfarið var tileinkaður myndlist á Íslandi. Bæði og Jón og Jóhannes Kjarval hvöttu Svavar til að halda út og í listnám, og skrifuðu meðmælabréf með honum.

Svavar entist ekki lengi í námi og þótti konunglega listaakademían bæði íhaldssöm og þröngsýn. En hann varð fljótt hluti af framúrstefnu-senunni í Danmörku. Ljóð og myndir eftir hann birtust í tímaritinu Helhesten, sem kynnti nýja strauma og stefnur fyrir Dönum, og 1938 fékk hann styrk til að ferðast til Parísar og heimsækja stúdíó heimsþekktra listmálara.