Mannvist á Mýrum

Maciej Rozanski • 4. desember 2023

Myndasýning á Bókasafni í Nýheimum

Miðvikudaginn 29. nóvember sl. var verkefnið Mannvist á Mýrum formlega kynnt, með opnun myndasýningar frá búsetuminjum á Mýrum

 

Miðvikudaginn 29. nóvember sl. var verkefnið Mannvist á Mýrum formlega kynnt, með opnun myndasýningar frá búsetuminjum á Mýrum. Með sýningunni er kynnt, í máli og myndum, brot úr búsetusögu nokkurra býla á Mýrum sem farið hafa í eyði á liðnum öldum. Minjarnar sem varðveist hafa bera vitni um þessa sögu. Mýramenn bjuggu við óvenjulegar og oft krefjandi aðstæður langt fram eftir 20. öld. Framgangur jökla, jökulár sem flæmdust um og jökulhlaup spilltu nytjalöndum og urðu þess valdandi, að margar fjölskyldur hröktust á milli staða. Þessar erfiðu aðstæður urðu til þess að fjölmörg býli og hjáleigur fóru í eyði.


Sýningin samanstendur af sex veggspjöldum, hönnuðum af Tim Junge, þar sem saga átta eyðibýla eru kynnt, með ljósmyndum og texta, ásamt lýsingum um áhrif og afleiðingar sem framgangur jökla og jökuláa hafði á land og búsetuskilyrði Mýramanna. Höfundar efnis eru Sigríður Guðný Björgvinsdóttir starfsmaður rannsóknarsviðs og Sigurður Örn Hannesson á Höfn. Sigurður er Mýrarmaður og fyrrum starfsmaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og vel kunnur staðháttum á Mýrum. Meirihluti mynda er tekinn með flygildi en með slíkri myndatöku er hægt að ná fram heppilegu sjónarhorni til að fá skörpustu myndir af fyrirbærum sem jarðlægar minjar eru. Sýningin mun standa á bókasafni Menningarmiðstöðvar í Nýheimum fram til 5. janúar n.k. og fylgir opnunartíma bókasafnsins. Verkefnið hefur vakið athygli og jákvæð viðbrögð meðal heimamanna og margir gestir nú þegar borið hana augum.


Mannvist á Mýrum er annar hluti samstarfsverkefnis rannsóknarsviðs Menningarmiðstöðvar og Þórbergsseturs um skráningu á fornum býlum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Megintilgangur þess er að hraða fornleifaskráningu fornra eyðibýla og annarra minja sem þeim tengjast, svo landfræði- og söguleg þekking þeirra glatist ekki. Samstarfið hófst í ársbyrjun 2020 og fyrsti hluti þess, Búsetuminjar í Suðursveit var kynntur með sama sniði sumarið 2021. Sú sýning stendur uppi í Þórbergssetri í Suðursveit. Báðar þessar sýningar hafa hlotið styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands hjá SASS – Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.


Verkefnið í heild sinni er að finna á vefsíðu þess: www.busetuminjar.is


Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !