Ný upplýsingaskilti sett upp á Höfn

Maciej Rozanski • 22. apríl 2020

Undanfarið hafa verið sett upp ný upplýsingarskilti á Höfn þar sem saga sveitarfélagsins er dregin fram.

Á upplýsingaspjöldunum ferðumst við aftur í tímann að upphafi byggðar 1897 og skoðum lífið á Höfn fyrr á tímum. Við gerð skiltanna var stiklað á stóru í sögu Hafnar og megin þáttum samfélagsins gerð skil.


Skiltin eru 27 talsins og samhliða þeim var hannaður ratleikur fyrir fjölskylduna sem gaman er að hafa með sér þegar gegnið er á milli skilta og sagan rifjuð upp. Ratleikurinn er aðgengilegur á vefsíðu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, mmh.hornafjordur.is



Spjöldin voru hönnuð af starfsmönnum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og verkefnið hlaut styrk úr styrktarsjóði Eignarhaldsfélags Brunabótarfélags Íslands. 


Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir 30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.
Eftir Dagur Snær Guðmundsson 23. júní 2026
Það er ótrúlega gaman að sjá allar minningarnar lifna við og fá innsýn í stemninguna, fólkið og söguna sem Humarhátíðin hefur skapað í gegnum árin.
Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir 22. júní 2026
Alþjóðlegi jafnréttiskólinn (GRÓ GEST: Gender Equality Studies & Training Programme under the auspices of UNESCO), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar, er gestgjafi sýningarinnar Aldrei útskrifuð – Ætíð minnst, sem fer fram á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá og með 18. Maí 2026.