Óskar Guðjónsson MOVE

Maciej Rozanski • 9. júlí 2025

Jazztónleikar í Gömlubúð

Kvartettinn MOVE með Óskari Guðjónssyni í fararbroddi heldur jazztónleika í Gömlubúð.


Kvartettinn MOVE með Óskari Guðjónssyni í fararbroddi heldur jazztónleika í Gömlubúð sunnudaginn 13.júlí klukkan 16:00 . Ásamt Óskari koma fram Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar Kolbeinn á kontrabassa og Matthías Memstock á trommur.

Fyrir sjö árum setti Óskar saman kvartett til að skoða lagahugmyndir sínar. Upp úr þessu þróaðist samstarf sem fór fram í vinnustofu Eyþórs Gunnarssonar og gekk út á að spila lögin endurtekið og velta þeim fyrir sér og prófað ólíkar nálganir. Samhliða því að tónlistin fór að taka á sig mynd byggðist upp sterkt samband á milli þeirra sem eiga sína upphafsstafi í nafninu MOVE sem auk Óskars og Eyþórs eru Valdimar, Kolbeinn Sigurjónsson og Matthías Hemstock

Á tímum tölvuvæðingar hafa handskrifaðar nótur orðið sjaldséðari en um leið tapast ákveðin fínni blæbrigði sem geta skipt máli. Óskar hefur fyrir löngu skapað sér persónulegan stíl í tónsmíðum sínum sem endurspeglast í rithöndinni og því hvað hann kýs að skrifa niður og hvað ekki. Það helst einnig í hendur við þá nálgun sem hann leitar að í flutningnum sem er vandlega mótaður en um leið opinn fyrir hinu óvænta. Þetta tengist lönguninni til að lögin öðlist sjálfstætt líf og geti fengið að þroskast og breytast eftir því sem tíminn og aðstæður bjóða upp á.



Þó lögin séu textalaus bera þau öll nöfn sem eru sprottin af vangaveltum um lífið, tilveruna, fólk og fyrirbæri sem því tengist. Skissubækurnar eru því einnig nokkurs konar dagbækur sem taka á málum sem koma upp í lífinu. Nánast allar æfingar MOVE hafa verið hljóðritaðar og partur af vinnuferlinu er að hlusta yfir upptökurnar til að greina kjarnann í hverju lagi fyrir sig. Það eru ófár klukkustundirnar af efni sem hefur safnast upp og í leiðinni margir lítrar af sódavatni og úrvals kaffi sem hafa runnið niður.

Dropinn holar steininn og eftir allan þennan tíma eiga meðlimir MOVE núna sameiginlegan hugmyndaheim sem hægt er að stíga inn í og sjá hvert hann tekur bæði þá og áheyrendur í það og það skiptið. Brottfararstaður hverju sinni liggur fyrir en svo má óvissuferðin byrja.


Texti á ensku:
Seven years ago, saxophonist Óskar Guðjónsson assembled a quartet where the focuse was on performing handwritten compositions that had accumulated in his meticulously kept sketchbooks over the years. It soon became clear that this was a project all members were willing to invest significant time in and truly make their own. From this collaboration, a partnership developed, taking place in Eyþór Gunnarsson's studio. The approach was to repeatedly play the pieces, explore different interpretations, and experiment with various approaches. Simultaneously, the music began to take shape, building a strong connection among the members. In addition to Óskar and Eyþór, the quartet includes Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson on bass and Matthías Hemstock on drums, all of whom share their initials in the name “MOVE.”


During the digital age, handwritten scores have become increasingly rare, yet they hold a certain delicate nuance that can make a difference. Óskar has long cultivated a personal style in his compositions, reflected in his handwriting and choices of what to write and what not to write down. This aligns with his approach to performance, which is structured but open to endless spontanious directions at the same time. The element of spontaneity stems from a desire for the music to develop independently, adapting and evolving based on the passage of time and circumstances.


Although the compositions are instrumental, they carry names inspired by reflections on life, existence, people, and related phenomena. The sketchbooks also serve as a form of diaries, capturing moments that arise in life.


Nearly all of MOVE's rehearsals have been recorded, and part of the work process involves listening back to the recordings to discern the essence of each piece. There are quite a few hours' worth of material accumulated, along with many liters of sparkling water and carefully brewed coffee that have been consumed during this creative journey.


After a long joyful journey the members of MOVE now share a collective realm of ideas—one that can be entered, explored, and followed wherever it leads. Welcome aboard!!


Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !