Pure Mobile vs Dolce Vita eftir Moniku Fryčovu

27. febrúar 2020

Föstudagshádegi


Árið 2013 fór Monika Fryčová með saltfisk á pínulítilli vespu frá Seyðisfirði til Lissabon, með viðkomu í Afríku. Þar var fiskurinn verkaður og sýndur sem listaafrakstur þess anga ferðarinnar. Þá fór hún til Al jezur og sótti bestu sætu kartöflurnar sem héraðið býður upp á og flutti þær á vespunni en nú til Reykjavíkur hvar þær voru hafðar til sýnis, og bundu jafnframt endahnút á þann legg ferðarinnar.


Ferðalagið var allt myndað og gerð um það heimildamynd - þó var margt sem vídeóvélin gat ekki fangað. Monika settist því niður og reit nokkurskonar ljóðræna dagbók ferðarinnar, sem er í senn vegabók í anda Kerouacs og myndlistarverk.


Monika kynnir fyrir okkur þetta merkilega ferðalag og sýnir bókina. Og máski má jafnvel kaupa eintak.

Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.