Rithöfundakvöld Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Vilhjálmur Magnússon • 8. janúar 2026

Nú er komið að hinu geisi vinsæla rithöfundakvöldi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar en viðburðurinn fer fram sunnudaginn 23.nóvember kl.20 í Nýheimum.

Í ár tökum við á móti 5 rithöfundum sem allir gefa út nýja bók um þessi jól. Bækurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og því ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis eins og ávallt og mun Menningarmiðstöðin bjóða upp á kaffi og konfekt á meðan á viðburðinum stendur.

Rithöfundarnir sem heimsækja okkur í ár eru eftirfarandi:

- Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kynnir barnabók sína Rækjuvík
- Gunnar Theódór Eggertsson kynnir ungmenna bók sína Álfareiðin
- Gísli Sverrir Árnason kynnir bók sína Saga Eymundar og Halldóru í Dilksnesi
- Joachim Schmit kynnir bók sína Ósmann- Lilja Sigurðardóttir kynnir spennusögu sína Alfa

Það þarf vart að taka fram að allar bækurnar verða fáanlegar til útláns á Bókasafni Hornafjarðar um leið og við fáum þær í hendur. Við hlökkum til að eiga góða kvöldstund með ykkur í Nýheimum sunnudaginn 23. nóvember n.k.


Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði SASS


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.