Svavarssafn kynnir nýtt hlaðvarp

Maciej Rozanski • 27. maí 2021

Á alþjóðlega safnadaginn fór í loftið fyrsti hlaðvarpsþáttur Svavarssafns.

Þema alþjóðlega safnadagsins 2021 er Framtíð safna : Uppbygging og nýjar áherslur. Svavarssafn tekur skref til framtíðar í tengslum við hina alþjóðlegu hugmyndafræði með því að hleypa af stokkunum nýju hlaðavarpi fyrir safnið. Auður Mikaelsdóttir listfræðingur við Svavarssafn fær til sín góða gesti þar sem rætt verður um sýningar og starfsemi safnsins. 


Markmiðið með hlaðvarpinu er að miðla starfsemi Svavarssafns á aðgengilegan máta og færa safnið nær þeim sem ekki eiga heimangengt. Fjallað verður um sýningar listasafnsins og rætt við þá sem koma að starfseminni og sýningum í safninu. Hugmyndin er að hafa hlaðvarpið á léttum nótum og að ná til flestra með fjölbreyttum efnistökum. Heyrumst í Svavarssafni! 


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.