Næturútvarp

Næturútvarp eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur ...AstaFanney-fb-cover

Úr sýningarskrá:

Næturútvarp eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur (f.1987) er óður til horfinna tíma, en einnig ákall til framtíðar. Verk hennar eru jafnan óræð og draumkennd. Þau hafa djúpa meiningu sem er jafnframt hulin þoku. Sýningin Næturútvarp er innblásin af abstrakt geometrísku verki eftir Svavar Guðnason (f.1909-1988); sem hann nefndi Næturútvarp á Öræfajökli, 1958, og tileinkaði vini sínum og tónskáldinu Jóni Leifs. Ljóðrænn titill verksins vekur upp margar hugleiðingar og tileinkunin ekki síður.

Svavar færðist jafnan undan því að skilgreina myndlit sína en sagði jafnframt að litirnir væru töfratónar. Æska hans og æfi var umvafin fjöllum, skýjuðum himni, söndum og grænni sveit undir birtuveröld Vatnajökuls, þar sem tilbrigði skærra litatóna, endurkast og mögnun birtu í þokukenndu landslagi Hornafjarðar voru honum innblástur. Svavar var líkt og Jón Leifs í sífelldri leit að sannri list, lygin ætti ekki erindi í listinni fremur en í ástinni. En sönn list sem hvetur og örvar ætlast ekki til þess að allir skilji hana saman skilningi. Myndlistarverk Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur tala sterkt inn í þessa listrænu sýn. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að verk þeirra lúta ekki nákvæmum skilgreiningum heldur skírskota þau til hughrifa og tilfinninga. Þau eru margbrotin og marglaga, þversagnakennd með ljóðrænan undirtón.