Nr. 5 Umhverfing

28.06-25.08.2024 stór samsýning 52 listamanna dreifð út um allan Hornafjörð

Þann 28.júní opnaði í Gömlubúð stærsta samsýning í sögu Hornafjarðar. Ekki bara var fjöldi þátttakenda óvenju hár heldur var svæðið sem sýningin átti sér stað úr óvenju víðfeðmt og náði yfir allan Hornafjörð.

Þann 28.júní opnaði í Gömlubúð stærsta samsýning í sögu Hornafjarðar. Ekki bara var fjöldi þátttakenda óvenju hár heldur var svæðið sem sýningin átti sér stað úr óvenju víðfeðmt og náði yfir allan Hornafjörð.

Um var að ræða samstarfsverkefni á vegum Listasafn Svavars Guðnasonar og Akademíu skynjunar, en það nefnis samstarf þeirra Þórdísar Öldu Sigurðardóttur, Önnu Eyjólfs og Ragnhildar Stefánsdóttur. Þær höfðu áður staðið fyrir svipuðum sýningum og gefið út samnefndar bækur í þessari sýningarröð. Nr. 1Umhverfing fór fram í Skagafirði, Nr.2 Fljótsdalshéraði, Nr.3 á Snæfellsnesi og Nr. 4 á öllum Vestfjörðum. Sú síðasta í upptalningunni var með 130 listamönnum á svæði sem náði yfir allt norðvesturhorn Íslands og gæti verið stærsta samsýning í sem hingað til hefur verið haldin á Íslandi.

Nr. 5 Umhverfing var einnig afar umfangsmikil. Fimmtíu og tveir listamenn sýndu verk á sýningunni sem náði frá Öræfum og út í Lón, s.s. um gervallt sveitarfélagið Hornafjörð. Sýningarstaðir voru einnig mjög fjölbreyttir. Sem dæmi má nefna Selið, gamlan torfbær staðsettan í Skaftafelli á svæði þjóðgarðsins (en í vörslu Þjóðminjasafnsins) en þar sýndu listamenn sem voru afkomendur og tengdabörn síðustu íbúa Selsins. Það eru þau Bjarni Þór Pétursson, Inga Sigga Ragnarsdóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Katrín Agnes Klar, Lukas Kindermann og Ragnar Kjartansson.

Í nágrenni við Selið í gamla sláturhúsinu á Fagurhólsmýri sýndu tveir listamenn til viðbótar, þeir Halldór Ásgeirsson og Spessi. Einnig var hægt að koma í pönnukökur til Evu Bjarnadóttur í gamla kaupfélagshúsinu meðan sýningin stóð yfir, og á Café Vatnajökul sem einnig er á Fagurhólsmýri sýndi Stefanía Ragnarsdóttir málverk.

Á Jökulsárlóni, undir brúnni við þjóðveginn, var hægt að virða fyrir sér ljósmyndir Lovísu Fanney af utanvegaakstri. Á Hala í Suðursveit á Þórbergssetri voru María Sjöfn, Gunnar Árnason og Gunnhildur Þórðardóttir með verk. Þess má geta að einnig var hægt að virða fyrir sér ljósmyndir Evu Schram á sama stað þó þau séu ekki hluti Umhverfingar heldur sjálfstæð verk.

Mæðgurnar Ragnhildur Stefánsdóttir og Ragnhildur Weisshappel reistu völundarhús á skógræktarsvæðinu í Haukafelli með því að nota litla fána og tjaldhæla. Sú síðarnefnda var einnig með vídjóverk á flugstöð Hornafjarðar. Inga Jónsdóttir var með innsetningu nærri Hoffellsjökli innblásinni af eyðibýlinu Viðborði á Mýrum, sem reist var 1937.

Á Höfn sýndi svo mikill fjöldi listamanna. Á Svavarssafni mátti sjá verk eftir listamennina Laufey Johansen, Ísar Svan Gautason, Skrými, Hörpu Árnadóttur og Helgu Erlendsdóttur og úr safneign, verk Svavars Guðnasonar, Höskuldar Björnssonar, Sigurðar Einarssonar, Rafns Eiríkssonar og Jón Þorleifssonar. Ragnhildur Ragnarsdóttir sýnir grafíkverk á bókasafninu en á torginu milli bókasafns og listasafnsins stendur skúlptúr eftir Guðrúnu Benediktu Elíasdóttur. Haraldur Jónsson, Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson og Lísa Þorsteinsdóttir voru einnig með skúlptúra utandyra. Hjónin Tim Junge og Lind Völundardóttir eru með veggmynd utan á Nýheimum. 


Ruri-fremur-gjorning-7

Í Gömlubúð voru svo verk eftir Ragnar Axelsson, Rúrí, Guðjón R. Sigurðsson, Ósk Vilhjálmsdóttur, Þórdísi Öldu Sigurðardóttur, Janet Laurence og Martina Priehodová. Skammt frá er innsetning eftir Arngrím Borgþórsson og Jónu Berglind Stefánsdóttur í skreiðarskemmunni. Í Miklagarði sýnir Hanna Dís Whitehead og Gerður Guðmundsdóttir, og inn í Heppu eru Sædís Harpa Stefánsdóttir og Stella Ögmundsdóttir. Þess má geta að Rúrí framdi gjörning á opnun sýningarinnar.

Í Lóni sýndu tvær listakonur, þær Eyrún Axelsdóttir á Hrafnavöllum og Eygló Harðardóttir í fundarhúsi Lónmanna.

Nánari upplýsingar um sýninguna má svo finna á heimasíðu Akademíu Skynjunar: https://www.academyofthesenses.is/nr5-umhverfing-no-5-around