Barnamenningardagar á Suðurlandi haldnir í fyrsta skipti

Vilhjálmur Magnússon • 20. apríl 2026

Barnamenningardagar á Suðurlandi fara fram dagana 22.–26. apríl næstkomandi, í kringum sumardaginn fyrsta.

Þá verður líf og fjör víðs vegar um landshlutann þar sem börn og fjölskyldur fá tækifæri til að njóta fjölbreyttrar menningar og taka virkan þátt í skapandi starfi. Hátíðin byggir á sterkri hefð, en í ár er sérstök áhersla lögð á að börn og ungmenni séu í forgrunni sem hugmyndasmiðir og listamenn. Lögð er áhersla á að þau fái að skapa, upplifa og njóta menningar á sínum eigin forsendum.

Sveitarfélög um allt Suðurland taka þátt í hátíðinni og móta sína eigin dagskrá, sem tryggir að viðburðirnir endurspegli nærumhverfi barna á hverjum stað. Á dagskrá eru meðal annars vinnustofur, sýningar, tónlist, ljósmyndun og fjölskylduviðburðir þar sem gleði og sköpun ráða ríkjum. Sameiginlegt verkefni hátíðarinnar í ár er ljósmyndaverkefnið „Suðurland með augum barna“, þar sem börn eru hvött til að fanga sitt umhverfi á mynd og veita þannig innsýn í upplifun þeirra á samfélagi, náttúru og daglegu lífi.

Í Hornafirði verður einnig boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni daganna, þar sem börn geta meðal annars tekið þátt í Fab Lab námskeiði, listasmiðjum með Krakkaklúbbnum Kóbru, tekið þátt í vegglistaverki í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni og notið umhverfistengdrar dagskrár á bókasafninu. Þá verður haldin ljósmyndakeppni undir yfirskriftinni „Hornafjörður með augum barna“, þar sem börn og ungmenni keppa í þremur aldursflokkum og eiga kost á verðlaunum, en bestu myndirnar fara áfram í sameiginlega stafræna sýningu fyrir allt Suðurland.

Barnamenningardagar eru því kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru, sköpunar og menningar og eru allir hvattir til að fylgjast með dagskránni og taka þátt í hátíðinni.

Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 8. september 2026
Í sumar var öllum börnum boðið að taka þátt í Sumarlestrarverkefni á bókasafninu okkar í Nýheimum. Verkefnið er sameiginlegt með flestum almenningsbókasöfnum í landinu sem þýðir að þó að einhverjir hafi farið á flakk í sumarfríinu þá gátu börnin ávallt komið við á bókasafni á ferðum sínum og kíkt á sumarlesturinn. Verkefnið snérist um Gúnda Geithafur og ævintýri hans. Börnin fengu afhent vegabréfið hans Gúnda og áttu að hjálpa honum að komast frá Heimahögum, þar sem ekki eitt stingandi strá var að finna og yfir til Grænuhlíðar þar sem allt var fagurgrænt. Með því að lesa í 15 mínútur færðist Gúndi á milli staða og fyrir hvern klukkutíma af lestri gátu börnin kíkt á bókasafn, fengið stimpil í vegabréfið og Happamiða sem þau skildu eftir á bókasafninu sínu. Við vorum svo heppin að í lok júlí kíkti enginn annar en Gunnar Helgason til okkar á Menningarmiðstöðina og las uppúr nokkrum af bókunum sínum og spjallaði við krakkana. Þetta gerði hann til að vekja athygli og áhuga á sumarlestrinum og Gunna var mjög vel tekið af hornfirskum börnum. Þó svo að það hafi verið hásumar, og margir á flakki um og útfyrir landssteinana, var húsfyllir hjá okkur og mikið hlustað og hlegið. Við þökkum Gunna enn og aftur fyrir komuna og skemmtunina. Nú er farið að síga á seinni hluta sumarlestursins enda skólarnir komnir í gang og flestir komnir með heimalesturs bækur frá kennurum sínum. Við á Menningarmiðstöðinni ætlum því að bjóða öllum börnum frá Höfn, sem tóku þátt í Sumarlestrinum, að koma til okkar og taka þátt í Uppskeruhátíð Sumarlestursins . Hátíðin fer fram laugardaginn 12. september kl.13 á bókasafninu í Nýheimum og öll börn sem skiluðu inn Happamiða fá þátttökuverðlaun. Að auki munum við draga út einn heppinn lestrarhest sem dreginn verður úr lukkupotti sem inniheldur alla Happamiðana, og fær viðkomandi veglegan vinning að launum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á bókasafninu í Nýheimum, laugardaginn 12. september kl.13.  Starfsfólk bókasafnsins
Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir • 30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.