Bókasafnið stóð fyrir málþingi í Grunnskólanum

Vilhjálmur Magnússon • 23. október 2025

Síðastliðinn mánudag, 20. október, stóð Bókasafn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar fyrir málþingi í Grunnskóla Hornafjarðar fyrir alla nemendur í 9. og 10. bekk.

Tilefnið var að föstudaginn 24. október eru 50 ár liðin frá því að konur gengu út frá störfum sínum og börðust fyrir jafnrétti. Almenningsbókasöfn um land allt hafa sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna þar sem vakin er athygli á jafnréttisbaráttunni Veglega dagskrá verkefnisins má sjá hér https://borgarbokasafn.is/laesi-stodu-og-barattu-kvenna/laesi-stodu-og-barattu-kvenna-dagskra


Málþing Menningarmiðstöðvarinnar fór fram í Vöruhúsinu þar sem um 40 nemendur á aldrinum 15-16 ára tóku þátt. Í upphafi voru flutt áhugaverð erindi þar sem farið var yfir sögu Kvennafrídagsins og stöðuna í dag. Eftir erindin fengu nemendur að ræða málin sín á milli og svöruðu spurningum í tengslum við umfjöllunarefnið.

Málþinginu stýrði Sandra Björg, bókavörður á Menningarmiðstöð Hornafjarðar en hún hóf málþingið á að segja ungmennunum frá bókinni Ég þori! Ég get! Ég vil! eftir Lindu Ólafsdóttur þar sem farið er yfir sögu hins fyrsta Kvennafrídags árið 1975. 

Fyrsti gestur málstofunnar var Ragnhildur Jónsdóttir sem var tæplega tvítug árið 1975. Sagði hún ungmennunum frá stöðunni þá og tók mörg dæmi úr samfélagsmyndinni sem þá var við lýði. Sem dæmi nefndi hún vinkonu sína sem hafði verið deildarstjóri í banka með margra ára reynslu. Á þessum árum var ráðinn karlmaður í sambærilega stöðu í bankanum en hann hafði um árabil unnið sem smiður og því svo til reynslulaus í bankastörfum. Maðurinn fékk þó strax mun hærri laun en konan. Bankastjórinn svaraði fyrirspurn um hvernig á því stæði á þá leið að nýji starfsmaðurinn væri karlmaður og þyrfti að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Konan var þó einstæð tveggja barna móðir og mun reynslumeiri starfsmaður. Sagan vakti töluverðan áhuga og undrun meðal fundargesta. Ragnhildur talaði einnig beint til drengjanna um þá ábyrgð sem krafist var af þeim áður fyrr, t.d. hvað varðar tekjuöflun heimilisins og karlmennsku ímynd.

Næst tók til máls Eyrún Fríða Árnadóttir, kynjafræðingur og formaður bæjarráðs en hún ræddi við ungmennin um stöðuna núna að hennar mati og mikilvægi þess að taka þátt í að bæta samfélagið og berjast fyrir betri heimi. Talaði hún um að þó margt hefði breyst til batnaðar þá væri enn ætlast til margs af ungum konum sem ekki er krafist af ungum mönnum, t.d. þegar kemur að þriðju vaktinni og umönnun ungabarna. 


Fyrsti gestur málstofunnar var Ragnhildur Jónsdóttir sem var tæplega tvítug árið 1975. Sagði hún ungmennunum frá stöðunni þá og tók mörg dæmi úr samfélagsmyndinni sem þá var við lýði. Sem dæmi nefndi hún vinkonu sína sem hafði verið deildarstjóri í banka með margra ára reynslu. Á þessum árum var ráðinn karlmaður í sambærilega stöðu í bankanum en hann hafði um árabil unnið sem smiður og því svo til reynslulaus í bankastörfum. Maðurinn fékk þó strax mun hærri laun en konan. Bankastjórinn svaraði fyrirspurn um hvernig á því stæði á þá leið að nýji starfsmaðurinn væri karlmaður og þyrfti að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Konan var þó einstæð tveggja barna móðir og mun reynslumeiri starfsmaður. Sagan vakti töluverðan áhuga og undrun meðal fundargesta. Ragnhildur talaði einnig beint til drengjanna um þá ábyrgð sem krafist var af þeim áður fyrr, t.d. hvað varðar tekjuöflun heimilisins og karlmennsku ímynd.

Næst tók til máls Eyrún Fríða Árnadóttir, kynjafræðingur og formaður bæjarráðs en hún ræddi við ungmennin um stöðuna núna að hennar mati og mikilvægi þess að taka þátt í að bæta samfélagið og berjast fyrir betri heimi. Talaði hún um að þó margt hefði breyst til batnaðar þá væri enn ætlast til margs af ungum konum sem ekki er krafist af ungum mönnum, t.d. þegar kemur að þriðju vaktinni og umönnun ungabarna. 


Að lokum ræddi Anna Birna Elvarsdóttir, jafnréttisfulltrúi sveitarfélagsins, við ungmennin en hún kynnti fyrir þeim Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins og hvað í henni fælist. Markið jafnréttisáætlunar er að tryggja íbúum og starfsfólki sveitarfélagsins lögbundin réttindi, koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna og jafna þannig stöðu þeirra á öllum sviðum samfélagsins.

Í seinni hluta málþingsins var ungmennunum skipt í umræðuhópa þar sem þau voru beðin um að velta fyrir sér og svara spurningum um hvort eitthvað hafi komið þeim á óvart í umræðunum á undan. Hvernig þau mætu stöðuna í dag og hvernig þau horfðu til framtíðarinnar.

Mörg minntust á að það kæmi þeim á óvart hve stutt sé síðan að kynbundið ójafnrétti hafi verið eins algengt og það var. „Þetta var þá ekki bara í torfkofunum í fornöld!“ Einnig bar nokkuð á að stúlkurnar teldu strákana fáfróða um fortíðina og mikilvægt að þeir átti sig á sögunni „Það er mikilvægt að drengir fái að vita kostina og gallana um jafnrétti!“ Þess ber þó að geta að strákahóparnir tóku flestir fram að umræðurnar hefðu verið góðar og flottar en vildu þó ekki meina að hún hefði komið þeim á óvart. Einnig minntust þónokkrir á áðurnefndar umræður Ragnhildar Jónsdóttur um t.d. kynbundin launamun.

Varðandi stöðuna í dag voru öll sammála um að mikið vatn hefði runnið til sjávar og staðan væri töluvert betri nú en fyrir 50 árum. Þó mætti alltaf gera betur. Einnig var mörgum umhugað um stöðuna í öðrum löndum og að við ættum að láta okkur hana varða.

Þegar kom að framtíðinni komu margir inn á að einnig væri mikilvægt að berjast fyrir jafnrétti annara hópa. Kvenréttindi væru vissulega mikils metin á Íslandi en því miður væri ekki hægt að segja það sama um marga aðra hópa. Einn vinnuhópur tók sérstaklega fram að það væri jafnréttismál að lækka verð á tíðavörum og getnaðarvörnum og uppskar mikinn fögnuð samnemenda sinna.

Málþingið heppnaðist einstaklega vel og ungmennin voru áhugasöm og tóku virkan þátt. 
Menningarmiðstöð Hornafjarðar þakkar öllum þátttakendum sem og gestum kærlega fyrir samstarfið og óskar öllum gleðilegs Kvennafrídags á föstudaginn. 


Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !