Harmljóð um hest-útgáfuteiti

Snæbjörn Brynjarsson • 14. júní 2024

Laugardaginn 15. júní verður útgáfuteiti á bókinni Harmljóð um hest.


Á morgun, laugardaginn 15. júní fer fram útgáfuhóf í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á bókinni Harmljóð um hest. Bókin inniheldur 80 ljósmyndir eftir Hlyn Pálmason sem sýna hestshræ brotna niður og samlagast jörðinni. Verkið er „sjónrænn sorgarsálmur, eins konar virðingarvottur til íslenska hestsins sem spilað hefur veigamikið hlutverk í mótun og sögu Íslands“, eins og ljósmyndarinn orðar það. Formálinn er skrifaður af Soffíu Auði Birgisdóttur en útgefandinn er bókaútgáfan Kind sem sérhæfir sig í fræði- og listabókum.


Stór hluti ljósmyndaseríunnar var til sýnis á samnefndri sýningu í Listasafni Svavars Guðnasonar sem opnaði 26.febrúar árið 2022. Starfsfólk menningarmiðstöðvarinnar óskar Hlyn Pálmasyni og Soffíu Auði innilega til hamingju með útgáfuna.

Eftir Kristín Vala 28. maí 2026
Nú þegar sumarið er farið að láta sjá sig er ekki úr vegi að kynna fyrir ykkur Sumarlesturinn en í ár tökum við á móti honum Gúnda Geithafri og hjálpum honum að komast yfir í gróskumikinn haga.
Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir 6. maí 2026
Frá árinu 2020 hefur rannsóknarsvið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, ásamt Þórbergssetri á Hala í Suðursveit, unnið að skráningu búsetuminja frá fyrri tíð í héraði sveitarfélagsins.
Eftir Kristín Vala 5. maí 2026
Í kjölfar sýningarloka Nytja hefur listasafni Svavars Guðnasonar nú hefur verið lokað og verður lokað fram á haust.