Sunna Gunnlaugs Trio

Maciej Rozanski • 14. júní 2024

Tríó Sunnu Gunnlaugs spilar í Nýheimum 18. júní og hefjast tónleikarnir kl 20:00. Miðaverð er 3.900kr og eru seldir við hurð.

English below -


Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur verið í fararbroddi íslenskra jazzleikara í yfir áratug. Þau hafa komið fram víða um heiminn og hlotið lof fyrir sinn ljóðræna jazz sem nær jafnt til jazzaðdáenda sem annara tónlistarunnenda. Tríóið hefur gefið út 5 hljóðritanir sem allar hafa hlotið frábærar viðtökur og umfjallanir í erlendum fjölmiðlum sem og að fá tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna.Tríóið skipa: Sunna Gunnlaugs á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.Tónleikar hefjast kl 20:00.Miðaverð er 3.900kr og miðar eru seldir við hurð.



Sunna Gunnlaug's trio has been at the forefront of Icelandic jazz for over a decade. The trio has performed around the world and received a lot of praise from jazz fans and other music lovers. The trio has released 5 recordings, all of which have received excellent reception and coverage in foreign media, as well as receiving multiple nominations for the Icelandic Music Awards.The trio consists of: Sunna Gunnlaugs on piano, Þorgrímur Jónsson on double bass and Scott McLemore on drums.The concert starts at 8:00pm.Tickets will be sold at the door at 3.900 IKR.Styrkt af Tónlistarsjóði


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.