Hreint og öruggt Svavarssafn
Maciej Rozanski • 18. mars 2021

Svavarssafn tekur þátt í átakinu Hreint og öruggt á vegum Ferðamálastofu.
Verkefnið byggir á erlendri fyrirmynd og er ætlað að hjálpa ferðaþjónustuaðilum að taka á móti viðskiptavinum á ábyrgan hátt. Markmiðið er að gestir upplifi sig örugga um leið og þeir skapa góðar minningar. Verkefnið er sjálfsmat og byggir á trausti og vilja þátttakenda til þess að sýna ábyrgð í verki. Svavarssafn leggur ríka áherslu á öryggi gesta sé í fyrirrúmi og framfylgir gildandi sóttvarnarreglum. Þátttaka Svavarssafns í verkefninu er þannig liður í því að laða að gesti sem og að auka ánægjulega upplifun af heimsóknum í safnið.
Verkefnið hefur verið samþykkt af heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaganna og World Travel and Tourism Council.
Verið velkomin í Svavarssafn!

Eftir Tjörvi Óskarsson
•
16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.

