Til Staðar í Svavarssafni

Maciej Rozanski • 31. janúar 2021

Myndlistarkonan Katrín Sigurðardóttir sýnir verkið Til Staðar í Svavarssafni. 

Í verkinu hefur Katrín unnið með þær sérstöku aðstæður sem skapast hafa á Íslandi vegna heimsfaraldursins og beint sjónum að því frábæra listsköpunarefni sem er landið sjálft.

Til Staðar eru þrjár innsetningar í náttúru Íslands og heimildir í formi ljósmynda og myndbands. Hin staðbundnu verk voru unnin á afviknum stöðum í þremur landsfjórðungum. Við Hoffell undir Vatnajökli, á Skarðsströnd við Breiðafjörð og í Svalbarðshreppi í Norður-Þingeyjarsýslu. Hugmyndin að baki verkinu tengist samspili hráefnis sem staðsetningar, mannlegs inngrips og ferlum náttúrunnar sjálfrar.


Katrín Sigurðardóttir hefur á 30 ára ferli sýnt skúlptúra, teikningar, ljósmyndaverk og stórar innsetningar sem umbreyta reynslu og upplifun áhorfandans. Undanfarin ár hefur hún unnið með efnislega frumferla jarðarinnar í verkum sínum. Katrín hefur átt mikilli velgengni að fagna innan listheimsins og verk hennar verið sýnd hér heima og víða erlendis en hún hefur m.a. verið fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum, Sao Paulo Tvíæringnum í Brasilíu, Momentum í Noregi og Rabat tvíæringnum í Marokkó. Einkasýning hennar í Metropolitan safninu í New York borg árið 2010 vakti mikla athygli.


Sýning Katrínar í Svavarssafni mun standa frá 2. febrúar til 5. maí 2021. Sýningarstjóri er Auður Mikaelsdóttir.


Tilurð verksins má rekja til þeirra óvenjulegu aðstæðna sem skapast hafa á Íslandi í kjölfar covid-19 en hugmynd Katrínar var að skapa verk sem gæti hjarað við svo sérstök skilyrði, fremur en að takmarkast af þeim. Þannig beinir hún sjónum sínum að landinu sjálfu og hráefnum þess. Viðfangið er náttúran og efniviðurinn er jörðin. Hér skapast verk úr efni sem hvorki þarf að kaupa né flytja, heldur verður listaverkið til á staðnum, ekkert er flutt að eða numið á brott. Verkið er unnið in situ á ógrónum reit þar sem jarðvegur var grafinn upp og unnin í leir. Leirinn formar Katrín í einingar sem minna á múrsteina og raðar þeim í hleðslu sem myndar tilvísun í byggð form, handverk og arkitektúr. Hér er bæði efnið og umhverfið lífrænt, aðeins jörðin sjálf hefur skipt um form. Jarðvegurinn hvílir á sínum stað og eiginleikar hans eru óbreyttir en hamurinn er annar. Hið mótaða form stendur þar fyrir veðri og vindum og þar til það máist eða leysist upp og hverfur aftur í jörðina. 


Jarðverkið við Hoffellsá á bæði uppruna sinn og endalok á staðnum. Leirinn, sem efniviður í sínum óendanleika, er minnisvarði um forgengilegt handverk mannsins (memento mori) þegar hann tekur á sig byggt form um stund. Katrín umbreytir gangi tímans í verkinu þar sem hið byggða lífræna form er fljótt að leysast upp í náttúrunni og líkist fornleifum á aðeins nokkrum dögum en ekki árhundruðum. Þannig vekur verkið upp hughrif sem spanna tíma, rúm, landslag, list og sköpun. Áhorfandinn skynjar samspil hugmyndarinnar og sjónrænnar framsetningar.


Hinar staðbundnu innsetningar mátti heimsækja og skoða meðan þær vörðu. Verkið við Hoffellsá hvílir í sínum upphafsreit, þó tíminn og náttúran hafði unnið á því og máð út þekkjanlegt form þess. Sýningin í Svavarssafni er ein þriggja sýninga sem hver um sig eru heimild um verkið, í nánd við uppruna þess og umhverfi.

Undanfari þessa verks eru staðbundin jarðverk og ljósmyndir sem sýndar voru á FRONT þríæringnum í Cleveland í Bandaríkjunum (2018), yfirlitssýningu Katrínar í Broad safninu í Michigan og á Tvíæringnum í Rabat í Marokkó (2019). Þessi verk fengu titilinn Namesake sem nær yfir allt ferlið; frá námuvinnslu á leir á Íslandi sem steyptur var í kantsteina til innsetningar þeirra í jarðveg á nýjum stað í nýju landi þar sem leirinn hvílir til framtíðar. Með Namesake skírskotar flutningur jarðvegs yfir landamæri í það líf sem sprettur af einni jörð og endar í annarri. Þessi verk hafa þannig sagnfræðilega vídd sem vísar til þjóðflutninga Íslendinga til Norður-Ameríku á tímum Vesturfaranna (FRONT, Broad) og til Norður-Afríku á tímum Tyrkjaránsins (Rabat). Orðið namesake vísar í það þegar staður er nefndur eftir öðrum stað, til dæmis Reykjavík í Manitoba þar sem íslenskir landnemar vísa til síns fæðingarstaðar og heimalands.


Í verkinu Til Staðar sem Katrín hefur unnið að öllu leyti á Íslandi er linsan dregin enn nær, en bæði þessi verk hverfast um minni og staðsetningu, minnið í efninu sjálfu, sem bókstaflega er til staðar, þó manngert form þess hverfi. 


Katrín Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík árið 1967 og hafa verk hennar verið sýnd víða bæði hérlendis og erlendis. Verk hennar High Plane hefur verið til sýnis í Listasafni Íslands síðastliðið ár og hefur hún margsinnis verið fulltrúi íslenskrar myndlistar á erlendri grundu, svo sem á Feneyjatvíæringnum 2013, Sao Paulo Tvíæringnum í Brasilíu 2018, Momentum í Noregi 2000 og Rabat tvíæringnum í Marokkó 2019. Einkasýning hennar í Metropolitan safninu í New York borg árið 2010 vakti mikla athygli.


Síðastliðin ár hefur Katrín unnið með jörðina sjálfa og efnislega frumferla náttúrunnar í verkum sínum. Þetta eru ferlar sem eru rannsakaðir á sviði fornleifafræði og eru frekar viðfangsefni jarðfræðinnar heldur en listarinnar. Þeir bera vitni um staðbundna fortíð, minni jarðar og hráefnis á sínum upphafsstað. Katrín notast við aðferðafræði námuvinnslu þar sem hún beinlínis nemur efni úr jörð og parar við staðlaða framleiðsluferla og flutningsaðferðir. Að lokum skilar hún efninu aftur í jörðina þar sem það samsamar sig jörðinni aftur. Í eitt augnablik í ferli jarðar tekur efnið á sig form byggingareininga. Þetta form og hlutverk þess er varðveitt í ljósmyndum áður en hin óhefta náttúrulega þróun heldur áfram og jörð snýr aftur til jarðar. Í samtali við Frances Richard sem birtist í vefritinu Places Journal segir Katrín:


“…Tíminn og náttúruöflin standa í eilífu mótvægi við byggingarlistina. Rústin snýr við stigveldinu á milli náttúrunnar og mannsandans. Til að vitna í Georg Simmel, „það sem mannsandinn reisti verður efniviður sömu krafta og forma útlínur fjallsins og árbakkans.“ Ég hika við að lýsa því sem ég geri sem eyðandi, vegna þess að „eyðilegging“ er eigindlegt, gildismetið hugtak og felur í sér hlutlægan, mannlegan ásetning. Ég hugsa frekar um ferlana mína sem sem nokkurs konar forsnið fyrir náttúruöflin. Að setja upp ákveðnar breytur þannig að þegar manngerður hlutur hlutur og þyngdaraflið grípa saman á óvæntan hátt, þá má segja að skilningur okkar á þessum hlut, hvað hann er og hvernig hann á að virka, sé dregin í efa. Ég er viss um að margir arkitektar geta vitnað um þetta. Kannski er arkitektúr einmitt það, að hanna forsnið fyrir náttúruöflin - í hagnýtum, markvissum tilgangi fyrir okkur mennina. „Forsniðið“ mitt leiðir hinsvegar til þess að virkni og tilgangur þess sem er formað eða byggt, er endurskoðað og endurskilgreint og að lokum enduruppgötvað.”


Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !