Leiðsögn & Listamannaspjall
Maciej Rozanski • 6. september 2021

Erla Þórarinsdóttir myndlistarmaður og Jón Proppé sýningarstjóri leiddu gesti um sýninguna Litir augans í Svavarssafni.
Laugardagurinn 28. ágúst var líflegur í Svavarssafni en þá gafst safngestum tækifæri til þess að fá leiðsögn um yfirstandandi sýningu Litir augans auk þess Erla Þórarinsdóttir og Jón Proppé sköpuðu umræðuvettvang um verkin og sýninguna. Áhugasamir unnendur menningar og myndlistar létu sig ekki vanta og kann Svavarssafn þeim öllum bestu þakkir fyrir komuna og góðar og gefandi umræður.

Eftir Tjörvi Óskarsson
•
16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.







