Menningarsaga Breiðamerkursands

Vilhjálmur Magnússon • 2. mars 2026

Á síðustu öldum hafa Breiðamerkurjökull og árnar sem frá honum renna, mótað Breiðamerkursand með þeim hætti, að landslag er gjörbreytt frá því sem var við landnám. 

Á landnámsöld var blómleg byggð á sandinum: „og lengi þar á eftir fagurt hérað, grösug og víða vaxin skógi með fjölmörgum bæjum. En nú er þar sandauðn“, segir í lýsingu Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar á svæðinu í ferðabók sinni frá 1772. Framrás Breiðamerkurjökuls á litlu-ísöld (1300-1900) olli því að jarðir í Öræfum og Suðursveit lögðust í eyði, sumar þeirra misstu tún og slægjulönd í jökulaur og bleytu en aðrar fóru að öllu leyti undir jökul.

Hversu vel þekkjum við menningarsögu Breiðamerkursands?


Breiðamerkursandur er í landnámi Hrollaugs Rögnvaldssonar er nam land frá Horni að Kvíá og gaf Þórði illuga Eyvindarsyni land milli Jökulsár og Kvíár. Þórður bjó undir Felli við Breiðá, en bær hans er talinn hafa verið Fjall við Bæjarsker undir Breiðamerkurfjalli. Sandurinn er kenndur við bæinn Breiðá eða Breiðármörk sem var höfuðból á söguöld og kemur fyrir í Njálu. Búsetusögu Fjalls og Breiðár lauk undir lok 17. aldar vegna Breiðamerkurjökuls. Við austurjaðar Breiðamerkursands stóð stórbýlið Fell undir Fellsfjalli, vestasta jörðin í Suðursveit. Um 1700 voru ekki færri en fjórar hjáleigur í ábúð í landi Fells, en flestar þeirra komnar í eyði á 19. öld, sem og heimajörðin sjálf. Fellsbæinn tók af í miklum vatnagangi í Veðurá 1869.


Vissir þú: að fyrsta skipsstrandið við strendur Suðursveitar sem sögur fara af, er þegar Þórður illugi braut skip sitt við Breiðársand á landnámsöld.


Vissir þú: að á fornbýli Kára Sölmundarsonar – Breiðá, bjó Özur Hróaldsson, frændi Síðu-Halls um árið 1000. Talið er víst að Özur hafi reist kirkju að Breiðá en hennar er ekki getið fyrr en í máldaga 1343.


Undir Kambsmýrarkambi stóðu selshús frá Kvískerjum.

Undir Kambsmýrarkambi stóðu selshús frá Kvískerjum.


Vissir þú: að Fell var höfuðból og sýslumannssetur um langan tíma. Fells er ekki getið í Landnámu en kemur fyrst fyrir í ritheimildum á 16. öld. En hver var fyrsti ábúandinn? Var það e.t.v. Hrollaugur sjálfur, eftir að hann seldi Breiðabólstað Úlfi vorska landnámsmanni á Skálafelli?


Vissir þú: að undir Nýgræðuöldum standa leifar sæluhúss, grjóthlaðin tóft Nýgræðnahússins sem reist var 1911. Húsið var ætlað ferðamönnum að leita skjóls í á ferðum yfir sandinn. Efniviður þess reyndist ekki endingargóður, núnir hleðslusteinar og hnausar úr sandi og leir. Fór svo að húsið sem þjónaði hlutverki sínu í 15 ár, bókstaflega „rann út í sandinn“. 

Horft í átt að Bæjarskeri undir Breiðamerkurfjalli. Landnámsbýlið Fjall stóð þar

Undir Kambsmýrarkambi stóðu selshús frá Kvískerjum.

Nú er unnið að skrásetningu sögu Breiðamerkursands með tilliti til menningarminja, frá landnámi til okkar daga. Sagan er stundum eini vitnisburðurinn um þá blómlegu byggð sem stóð undir suðaustanverðum Vatnajökli frá landnámstíma og fram undir loka 19. aldar. Saga samgangna yfir Breiðamerkursand á sér varla hliðstæðu í íslenskri sögu. Nærri 40 km af torfærum í vatnsflaumi og foraði, að menn tóku að ryðja sér leið yfir jökulinn til að komast fyrir illræmda Jökulsá.

Tilgangur þessa verkefnis er að vekja athygli og áhuga fólks á þeirri sérstöku sögu mannvistar úr héraði Öræfa og Suðursveitar, búsetu sem var með allt öðrum hætti en tíðkast í dag. 


Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !