Menningarhátíð sveitarfélagsins 2026
Vilhjálmur Magnússon • 3. mars 2026
Menningarhátíð sveitarfélagsins verður haldin í Nýheimum föstudaginn 6.mars kl.17:00.
Veittir verða fjölbreyttir styrkir, viðurkenningar nefnda sveitarfélagsins og menningarverðlaun ársins verða tilkynnt.
Dagskrá: Sigurjón Andrésson bæjarstjóri setur hátíðina.
- Afhending umhverfisviðurkenninga. Hjördís Edda Olgeirsdóttir, formaður Umhverfis- og skipulagsnefndar afhendir.
- Afhending styrkja úr Atvinnu- og rannsóknarsjóði. Steindór og Tinna - varaformaður nefndar og nefndarmaður afhenda.
- Tónlist frá Norðurljósablúshátíð: Eyþór Ingi og Óskar úr Vintage Caravan.
- Afhending Verkefnastyrkja. Sigrún Sigurgeirsdóttir og Þóra Björg Gísladóttir, formenn atvinnu- og menningarmálanefndar og varaformaður fræðslu- og frístundanefndar afhenda.
- Afhending menningarverðlauna Sigrún Sigurgeirsdóttir, formaður Atvinnu- og menningarmálanefndar afhendir.
- Tónlist: Siggi Graffíll
Öll velkomin!


Eftir Tjörvi Óskarsson
•
16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.

