Menningarhátíð Hornafjarðar 24 verkefni hlutu styrk

Vilhjálmur Magnússon • 9. mars 2026

Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar fór fram með hátíðlegri athöfn í Nýheimum síðastliðinn föstudag, 6. mars.

Þar komu íbúar og gestir saman til að fagna menningarstarfi í sveitarfélaginu, veita viðurkenningar og afhenda styrki til fjölbreyttra verkefna sem efla samfélagið. Hátíðin markar uppskerustund menningarlífsins í Hornafirði þar sem dregið er fram það fjölbreytta starf sem á sér stað í sveitarfélaginu og þakkað fyrir framlag þeirra sem leggja sitt af mörkum til að gera samfélagið lifandi og skapandi. Sigurjón Andrésson bæjarstjóra Hornafjarðar setti hátíðina en í ávarpi sínu lagði hann áherslu á mikilvægi menningar í samfélaginu og sagði hana vera hjartslátt þess, hún sameini fólk, skapi tækifæri til þátttöku og gefi samfélaginu líf og lit.


Umhverfisviðurkenningar sveitarfélagsins

Ár hvert auglýsir sveitarfélagið eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir einstaklinga, félagasamtök, fyrirtæki eða stofnanir sem hafa skarað fram úr í umgengni við náttúru og umhverfi og lagt sitt af mörkum til verndunar þess í samfélaginu.


Að þessu sinni voru veittar þrjár viðurkenningar:

Körfuknattleiksdeild Sindra hlaut viðurkenningu fyrir framlag sitt til endurvinnslu en deildin sinnir vikulegri dósamóttöku endurvinnslunnar og stuðlar þannig að aukinni endurvinnslu, minni sóun og betri nýtingu auðlinda í samfélaginu.


Leikskólinn Sjónarhóll fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt og vel hirt umhverfi leikskólans og þá áherslu sem lögð er á að skapa fallegt og hlýlegt nærumhverfi fyrir börn og starfsfólk. Sérstaklega var bent á nýja viðbyggingu leikskólans sem er fyrsta svansvottaða byggingin í sveitarfélaginu.

Þórgunnur Torfadóttir og Ásgrímur Ingólfsson, eigendur sumarbústaðarins Karlsfells í Lóni, hlutu viðurkenningu fyrir metnaðarfulla ræktun lands, trjárækt og snyrtimennsku sem fellur vel að náttúru svæðisins og er góð fyrirmynd í umhverfisvernd. 

Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Að venju er úthlutað úr atvinnu- og rannsóknarsjóði á Menningarhátíð sveitarfélagsins. Meginhlutverk sjóðsins er að efla byggð og atvinnu og þá er sjóðnum ætlað að veita styrki til verkefna sem lúta að atvinnuþróun, rannsóknum og nýsköpun í Sveitarfélaginu Hornafirði. Umsjón sjóðsins er í höndum atvinnu- og menningarmálanefndar.


Verkefni sem hlutu styrk úr sjóðnum í ár eru:

  • HLS ehf. - Eystrahorn héraðsfréttamiðill – endurvakning – 623.466 kr
  • Náttúrustofa Suðausturlands ses - Hin óþekktu víðerni - 235.199 kr
  • Samtök smáframleiðenda matvæla - Beint frá býli dagurinn á Hólmi Farm, Hornafirði - 250.000 kr
  • Grænalaut nýsköpun ehf. - (steam) Blast the Bast - 150.000 kr
  • Ágústa Arnardóttir - Hvað ætla ég að gera? Stuttmynd - 300.000 kr


Nýtt fyrirkomulag verkefnastyrkja sveitarfélagsins

Á hátíðinni voru verkefnastyrkir sveitarfélagsins veittir í fyrsta sinn samkvæmt nýju fyrirkomulagi þar sem styrktarsjóðir atvinnu- og menningarmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar hafa verið sameinaðir í verkefnastyrki sveitarfélagsins. Markmið sjóðsins er að styðja við afmörkuð verkefni og viðburði sem hafa sýnileg áhrif á menningarlíf og samfélag í sveitarfélaginu.


Alls hlutu 19 verkefni styrk að þessu sinni, samtals að fjárhæð 5 milljónir króna.


Verkefni sem hlutu verkefnastyrk 2026:

  • 785 FhM ehf – Hvað gera þessar býflugur? – 100.000 kr
  • Alice Sowa – Lupine Composites – 100.000 kr
  • Kvennakór Hornafjarðar – Söngur um allar sveitir – 100.000 kr
  • Rósa Sigrún Jónsdóttir – Tíminn býr í efninu – 100.000 kr
  • Félag eldri Hornfirðinga – Útskurður og trérennismíði – 150.000 kr
  • Ungmennafélag Öræfa – Kórastarf í Öræfum – 150.000 kr
  • Samkór Hornafjarðar – Kóraheimsókn, styrkja tengslin – 150.000 kr
  • Agnar Jökull Imsland Arason – Kynning á svepparæktun í heimabyggð – 200.000 kr
  • Blús og rokklúbbur Hornafjarðar – Norðurljósablús – 200.000 kr
  • Tjörvi Óskarsson – Hljóð og Náttúra – Jöklar í breytingu – 200.000 kr
  • Félag harmonikkunenda á Hornafirði og nágrenni – Hagyrðingakvöld F.H.U.H. 2026 – 250.000 kr
  • Leikfélag Hornafjarðar – Ekki er komið nafn á leikritið sem á að sýna – 250.000 kr
  • Foreldrafélag GH og Sjónarhóls – Litahlaup – 250.000 kr
  • Florent Irion – Ice Climbing Movie/Documentary: 'Lonid – Climbing Icebergs' – 250.000 kr
  • Svanhvít Helga Jóhannsdóttir – Öræfahlaupahátíð – 250.000 kr
  • Hanna Dís Whitehead – Krakkaklúbburinn Kóbra kynnist Kvískerjum – 300.000 kr
  • Sædís Harpa Stefánsdóttir – Ljóðakistan – Ljóð og Lag ferðast um landið – 300.000 kr
  • Grunnskóli Hornafjarðar og foreldrar – Legóferð Grunnskóla Hornafjarðar – 700.000 kr
  • Graffíll, félagasamtök – Graffíll 2026 – 1.000.000 kr


Menningarverðlaun Hornafjarðar
Aðalverðlaun hátíðarinnar eru Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Verðlaunin eru veitt árlega sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framlag á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu. Markmið þeirra er jafnframt að hvetja til áframhaldandi eflingar menningar- og listastarfs í Hornafirði.

Verðlaunin geta fallið í skaut einstaklings, hóps, samtaka eða stofnunar sem hefur skarað fram úr á sviðinu. Þau eru veitt í formi heiðursskjals og ákveðin af atvinnu- og menningarmálanefnd sveitarfélagsins. Íbúar voru hvattir til að senda inn tilnefningar í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins og voru sjö tilnefndir að þessu sinni.


Tilnefnd til menningarverðlauna 2026 voru:

  • Ágústa Margrét Arnardóttir
  • Björn Gísli Arnarson
  • Hornfirskir tónlistarmenn
  • Jóhanna Stígsdóttir
  • Jón Haukur Hauksson
  • Karl Skírnisson
  • Sigurður Pálmi Hafþórsson


Menningarverðlaun ársins hlýtur Sigurður Pálmi Hafþórsson fyrir hugmynd sína, frumkvæði og dugnað við framkvæmd Graffíls - listahátíðar ungs fólks. Hátíðin fór fram síðasta sumar og hefur vakið athygli sem vettvangur fyrir unga listamenn og skapandi starf í samfélaginu. Graffíll er aftur á dagskrá á Höfn 18. júlí n.k. og hvetjum við íbúa til að taka daginn frá.


Menningarhátíð Hornafjarðar undirstrikar þann kraft sem býr í menningar-starfi sveitarfélagsins og hvetur til áframhaldandi sköpunar, þátttöku og þróunar nýrra verkefna sem styrkja samfélagið til framtíðar. Kærar þakkir til allra þeirra sem leggja sitt af mörkum til eflingar samfélagsins okkar. 

Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !