Opnun í Gömlubúð

Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026

Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna

Verið öll hjartanlega velkomin á opnun í Gömlubúð laugardaginn 17. október kl. 15–17. Þá verður opnaður nýr angi sýningarinnar „Út úr geymslunni“.

Það er sannkallaður menningardagur barnanna þann daginn, en einnig verður Línu Langsokk-dagur á bókasafninu kl. 13 í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá því að Lína kom fyrst út. Þá verða lesin saman ævintýri um Línu og föndrað eitthvað skemmtilegt í hennar anda. Því er tilvalið að kíkja fyrst þangað og koma svo á sýninguna.


Þegar við buðum íbúum sveitarfélagsins að velja muni úr safneign Byggðasafnsins til að setja á sýninguna „Út úr geymslunni“ kom glöggt í ljós að þau sem voru börn þegar grunnsýning safnsins var uppi, allt til ársins 2012, söknuðu einna helst dýranna sem voru sýnd á efstu hæð Gömlubúðar.

Við ákváðum því í kjölfarið að gefa börnum í sveitarfélaginu tækifæri til að taka völdin í sýningarstjórninni með þeim hluta sýningarinnar sem snýr að náttúrugripum.

Hluti nemenda í grunnskólum svæðisins valdi dýr með leik. Þau fengu að heyra um einkenni og hegðun dýranna, en ekki um hvaða dýr um ræddi, og létu síðan forvitni, húmor og innsæi ráða valinu.

Þegar kom í ljós hvaða dýr hafði orðið fyrir valinu báðum við börnin um að hjálpa okkur við gerð sýningartexta með því að spyrja spurninga um dýrið sem þau völdu. Þau spurðu mjög skemmtilegra spurninga um dýrin sem okkur hefði aldrei dottið í hug að spyrja. Við leituðum í kjölfarið að svörunum og settum þau í sýningartextann.

Dæmi um skemmtilegar spurningar eru: Er vepjan til dæmis frá París? Eru fuglar með hor? Af hverju er þetta dýr svona drekalegt? Við mælum með að fólk skoði það!

Að auki völdu Náttúrustofa Suðausturlands, Náttúruverndarstofnun og Fuglaathugunarstöð Suðausturlands muni sem varpa ljósi á fjölbreytt lífríki svæðisins. Þar má meðal annars sjá fugla sem eru í útrýmingarhættu, tegundir sem eru að fjölga sér, óvenjulega farfugla og tröllasmiðinn, sem er einstakur fyrir svæðið, auk muna sem tengjast ævintýralegu lífríki Breiðamerkursands.



Safnverðir völdu að lokum þau dýr sem þeim fannst börnin helst sýna áhuga á í leiknum, en enduðu þó fyrir tilviljun ekki í lokavalinu.

Þannig fá dýrin aftur sinn sess í sýningunni – að þessu sinni með börnin við stjórnvölinn.

Við vonum að ungir sem aldnir, og allir þar á milli, njóti!

Þessi opnun markar einnig lokin á þróunarferli sýningarinnar, sem mun standa út nóvember. Nú setjum við fullan kraft í hönnun og þróun á nýrri grunnsýningu Byggðasafnsins, sem opnar 14. mars 2027 með pompi og prakt.


Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !