Tilraun Æðarrækt

Maciej Rozanski • 19. september 2022

Föstudaginn 16. september opnaði sýningin Tilraun Æðarrækt í Svavarssafni.

Sýningin teygir sig þó langt út fyrir Svavarssafn og hægt er að virða fyrir sér verk í Gömlubúð, bókasafni Hornafjarðar, sundlaug Hornafjarðar og í Miðbæ, enda eru fjölmargir listamenn frá Íslandi, Danmörku og Noregi að taka þátt.

Tilraun Æðarrækt er þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna á Íslandi, í Danmörku og Noregi. Sýningin er byggð á rannsókn á fuglinum og umhverfi hans, á sambandi hans við manninn, hefðinni, æðardúni og því hvernig dýrmæt sjálfbær hlunnindi eru nýtt á Norðurslóðum.

Æðarfuglinn og æðarbændur hafa þróað einstakt samband sín á milli byggt á vináttu og gagnkvæmu trausti og er báðum aðilum til hagsbóta. Æðarbóndinn ver fuglinn gegn vargi og fær að launum dún fuglsins, eitt best einangrandi efni í heiminum. Ef dúnninn er ekki tíndur fer hann forgörðum. Um 4 tonn af æðardúni eru unnin á norðurhveli jarðar ár hvert, þar af rúm 3 tonn á Íslandi.



Tilraun – Æðarrækt er rannsóknarverkefni sem hófst árið 2019. Listamennirnir á sýningunni eru með fjölbreyttan bakgrunn í myndlist, hönnun, sviðslistum, tónlist og arkitektúr. Þátttakendur voru valdir út frá fyrri verkum þeirra og aðferðafræði og einhverjir þeirra paraðir saman til að skapa áhugavert samtal. Hópurinn fór saman í ferðir að kynna sér ólík æðarvörp og hver einstaklingur eða teymi fóru svo á ólíka staði til að kynnast heimi æðarfuglsins enn frekar.


Hlutverk lista er að varpa fram spurningum, rýna í hversdagslega hluti frá nýju sjónarhorni og skapa nýjar leiðir til að leysa verkefni. Æðarfuglum og æðarrækt stendur ógn af hlýnun jarðar, auk breyttra lifnarðarhátta. Fólk flyst úr sveit í borg og fjarlægð við æðarvörpin eykst. Við lítum á verkefnið sem hlekk í því að átta sig á stóra samhenginu, vistkerfinu okkar. Listræn nálgun og skapandi hugsun eru mikilvægt tól í þeirri umræðu.

Æðarkollur hljóma eins og þeim hafi verið sagt eitthvað áhugavert, jafnvel slúður. Úúúú, Úúúú! Það er erfitt að hrífast ekki af þessum fallega kór. Við vonum að verkefnið veiti þér innblástur og þú eigir nokkur Úúúú augnablik á sýningunni og næst þegar þú hittir æðarfugla.


Sýningastjórar: Hildur Steinþórsdóttir & Rúna Thors

Sýningarstjórar á Svavarssafni: Rúna Thors & Hanna Dís Whitehead


Sýnendur:
Anne Lass, Lisbeth Burian & Rikke Houd
Arnhildur Pálmadóttir & Samuel T. Rees
Auður Ösp Guðmundsdóttir & Hanna Jónsdóttir
Baldur Björnsson & Þórey Björk Halldórsdóttir
Bjarki Bragason
Brynhildur Pálsdóttir & Ólöf Erla Bjarnadóttir
Eygló Harðardóttir
Friðgeir Einarsson & Sigrún Hlín Sigurðardóttir
Gabriel Johann Kvendseth
Hilda Gunnarsdóttir & Loji Höskuldsson
Íris Indriðadóttir & Signý Jónsdóttir
Kristbjörg María Guðmundsdóttir, Ragna Margrét Guðmundsdóttir & Vilborg Guðjónsdóttir
Margrét H. Blöndal
Tanja Levý & Valdís Steinarsdóttir

Sýningin er styrkt af SASS-Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Norrænu Ráðherranefndinni, Hönnunarsjóði og Nordisk Kulturfond.


Eftir Tjörvi Óskarsson 8. september 2026
Í sumar var öllum börnum boðið að taka þátt í Sumarlestrarverkefni á bókasafninu okkar í Nýheimum. Verkefnið er sameiginlegt með flestum almenningsbókasöfnum í landinu sem þýðir að þó að einhverjir hafi farið á flakk í sumarfríinu þá gátu börnin ávallt komið við á bókasafni á ferðum sínum og kíkt á sumarlesturinn. Verkefnið snérist um Gúnda Geithafur og ævintýri hans. Börnin fengu afhent vegabréfið hans Gúnda og áttu að hjálpa honum að komast frá Heimahögum, þar sem ekki eitt stingandi strá var að finna og yfir til Grænuhlíðar þar sem allt var fagurgrænt. Með því að lesa í 15 mínútur færðist Gúndi á milli staða og fyrir hvern klukkutíma af lestri gátu börnin kíkt á bókasafn, fengið stimpil í vegabréfið og Happamiða sem þau skildu eftir á bókasafninu sínu. Við vorum svo heppin að í lok júlí kíkti enginn annar en Gunnar Helgason til okkar á Menningarmiðstöðina og las uppúr nokkrum af bókunum sínum og spjallaði við krakkana. Þetta gerði hann til að vekja athygli og áhuga á sumarlestrinum og Gunna var mjög vel tekið af hornfirskum börnum. Þó svo að það hafi verið hásumar, og margir á flakki um og útfyrir landssteinana, var húsfyllir hjá okkur og mikið hlustað og hlegið. Við þökkum Gunna enn og aftur fyrir komuna og skemmtunina. Nú er farið að síga á seinni hluta sumarlestursins enda skólarnir komnir í gang og flestir komnir með heimalesturs bækur frá kennurum sínum. Við á Menningarmiðstöðinni ætlum því að bjóða öllum börnum frá Höfn, sem tóku þátt í Sumarlestrinum, að koma til okkar og taka þátt í Uppskeruhátíð Sumarlestursins . Hátíðin fer fram laugardaginn 12. september kl.13 á bókasafninu í Nýheimum og öll börn sem skiluðu inn Happamiða fá þátttökuverðlaun. Að auki munum við draga út einn heppinn lestrarhest sem dreginn verður úr lukkupotti sem inniheldur alla Happamiðana, og fær viðkomandi veglegan vinning að launum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á bókasafninu í Nýheimum, laugardaginn 12. september kl.13.  Starfsfólk bókasafnsins
Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir 30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.
Eftir Dagur Snær Guðmundsson 23. júní 2026
Það er ótrúlega gaman að sjá allar minningarnar lifna við og fá innsýn í stemninguna, fólkið og söguna sem Humarhátíðin hefur skapað í gegnum árin.