Ómar fortíðar

Maciej Rozanski • 29. september 2022

Í tilefni útgáfu á plötu Ómars Guðjónssonar, Ómar fortíðar, er Hornfirðingum og öðrum áhugasömum boðið á ókeypis tónleika í Hafnarkirkju.

Í tilefni útgáfu á plötu Ómars Guðjónssonar, Ómar fortíðar, er Hornfirðingum og öðrum áhugasömum boðið á ókeypis tónleika í Hafnarkirkju þriðjudaginn 4.okt kl:20:00.


Á plötunni flytur Ómar þekkt lög úr þjóðarsál Íslendinga á hljóðfærið
"fetilgítar" eða "pedal steel" á móðurmáli hljóðfærisins. Með Ómari á hljómplötunni eru þeir Matthías Hemstock á slagverk og Tómas Jónsson á píano og hljóðgervla.


Lögin eru t.d úr smiðju Karls Ó Runólfssonar, Jónasar Tómassonar, Árna Thorsteinssonar og Bjarna Þorsteinssonar. Öll frá árunum 1930 til 1960.


Ómar Guðjónsson hefur víða borið niður, í flestum stílum og stefnum ryþmískrar tónlistar. Hann hefur líka rannsakað hljóðheim gítarsins – og fetilgítarsins – meira en margur. Það er meira en aldarfjórðungsreynsla í þeim fingrum sem hér túlka með nýjum hljómi margar gersemar úr íslenskri sönglagahefð. Hann hnikar öllu til, sleppir orðunum, breytir hljómunum, styttir og lengir upprunalengd laglínunótnanna og skapar ný lög eins og sá djassmaður sem hann er. En þessi nýju gömlu lög snerta íslensk hjörtu á allt annan hátt en frumlegar útgáfur af klassískum djasslögum; hann er nefnilega að endurskapa lög sem við ólumst upp við og óma inni í okkur. Og kannski ræður það úrslitum að þessi endursköpun er borin fram af sterkri ljóðrænni tilfinningu sem kallast á við rómantíkina sem réði ferð hjá höfundum laganna.



Tónleikarnir eru kostaðir af Menningarmiðstöð Hornafjarðar.


Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir 30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.
Eftir Dagur Snær Guðmundsson 23. júní 2026
Það er ótrúlega gaman að sjá allar minningarnar lifna við og fá innsýn í stemninguna, fólkið og söguna sem Humarhátíðin hefur skapað í gegnum árin.
Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir 22. júní 2026
Alþjóðlegi jafnréttiskólinn (GRÓ GEST: Gender Equality Studies & Training Programme under the auspices of UNESCO), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar, er gestgjafi sýningarinnar Aldrei útskrifuð – Ætíð minnst, sem fer fram á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá og með 18. Maí 2026.