Tækni

Maciej Rozanski • 27. febrúar 2020

Sýningin Tækni opnaði í febrúar í Gömlubúð

Tækni er vítt skilgreint hugtak sem notað er um getu lífveratil þerr að nýta sér unhverfi til framdráttar.

Mannkynið hefur nýtt sér vísindin til þess að búa til ýmiskonar verkfæri sem hafa breytt lífsskilyrðum á hverjum tíma.

Saga þróunar tækni er nátengd sögu þróunar mannsins. Með tækni er hugsanlega átt við hluti eins og tæki, vélar og verkfæri en það á einnig við um huglæga hluti svo sem kerfi, skipulag og aðferðir.


Í dag eru farsímar nýttir í hin ýmsu störf samfélagsins og eru orðnir öryggistæki margra.


Farsímar eru nýttir við björgunarstörf, við neyðarútköll, vinnu á sjó og á landi og til að halda uppi félagslegur tengslum. Mikið er rætt um slæm áhrif farsímanotkunar á einstaklinga en samt sem áður er síminn þarfa þing á hverju heimili. Nánast hver einstaklingur yfir 12 ára aldur getur sagst vera eingandi farsíma hér á landi. 

Þróun farsíma s.l. ár hefur verið ótrúleg og sést sú þróun vel á þessum tækjum sem til sýnis eru á sýningunni. Hafa þau þróast hratt í tímans rás og hvert og eitt þeirra og tekið á sig aðrar og minni myndir. Í dag er öll þessi tækni í litlum símatækjum og aðgengileg með einni snertingu á farsíma. 


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.