Aldrei útskrifuð – Ætíð minnst : sýning á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Sandra Björg Stefánsdóttir • 22. júní 2026

Alþjóðlegi jafnréttiskólinn (GRÓ GEST: Gender Equality Studies & Training Programme under the auspices of UNESCO), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar, er gestgjafi sýningarinnar Aldrei útskrifuð – Ætíð minnst, sem fer fram á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá og með 18. Maí 2026.

Frá árinu 2023, hefur sýningin ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem aldrei munu útskrifast úr háskólanámi sínu, þar eð þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.


Sýningin inniheldur tilbúin prófskírteinu 40 námsmanna og á þau er rituð saga nemendanna sem létust í blóma lífsins. Skírteinin eru því tákn menntunar og standa eftir sem minnisvarðar um skarð sem aldrei verður fyllt.


Markmið sýningarinnar er að minna umheiminn á yfirstandandi stríð og það gjald sem Úkraínumenn greiða á degi hverjum í baráttu sinni fyrir frelsi.


Daryna Zavhorodnia sem nú stundar nám við Alþjóðlega Jafnréttisskólann, er ein af upphafsmönnum sýningarinnar sem sett hefur verið upp í ólíkum háskólum og söfnum í yfir fjörutíu löndum. Daryna var stödd á Höfn á opnun sýningarinn þann 18. maí s.l. og  kynnti þá sýninguna og verkefnið.



Sýningin mun standa uppi á bókasafninu út júní mánuð og öll eru velkomin að kynna sér efni hennar á opnunartíma bókasafnsins. 


Eftir Tjörvi Óskarsson 8. september 2026
Í sumar var öllum börnum boðið að taka þátt í Sumarlestrarverkefni á bókasafninu okkar í Nýheimum. Verkefnið er sameiginlegt með flestum almenningsbókasöfnum í landinu sem þýðir að þó að einhverjir hafi farið á flakk í sumarfríinu þá gátu börnin ávallt komið við á bókasafni á ferðum sínum og kíkt á sumarlesturinn. Verkefnið snérist um Gúnda Geithafur og ævintýri hans. Börnin fengu afhent vegabréfið hans Gúnda og áttu að hjálpa honum að komast frá Heimahögum, þar sem ekki eitt stingandi strá var að finna og yfir til Grænuhlíðar þar sem allt var fagurgrænt. Með því að lesa í 15 mínútur færðist Gúndi á milli staða og fyrir hvern klukkutíma af lestri gátu börnin kíkt á bókasafn, fengið stimpil í vegabréfið og Happamiða sem þau skildu eftir á bókasafninu sínu. Við vorum svo heppin að í lok júlí kíkti enginn annar en Gunnar Helgason til okkar á Menningarmiðstöðina og las uppúr nokkrum af bókunum sínum og spjallaði við krakkana. Þetta gerði hann til að vekja athygli og áhuga á sumarlestrinum og Gunna var mjög vel tekið af hornfirskum börnum. Þó svo að það hafi verið hásumar, og margir á flakki um og útfyrir landssteinana, var húsfyllir hjá okkur og mikið hlustað og hlegið. Við þökkum Gunna enn og aftur fyrir komuna og skemmtunina. Nú er farið að síga á seinni hluta sumarlestursins enda skólarnir komnir í gang og flestir komnir með heimalesturs bækur frá kennurum sínum. Við á Menningarmiðstöðinni ætlum því að bjóða öllum börnum frá Höfn, sem tóku þátt í Sumarlestrinum, að koma til okkar og taka þátt í Uppskeruhátíð Sumarlestursins . Hátíðin fer fram laugardaginn 12. september kl.13 á bókasafninu í Nýheimum og öll börn sem skiluðu inn Happamiða fá þátttökuverðlaun. Að auki munum við draga út einn heppinn lestrarhest sem dreginn verður úr lukkupotti sem inniheldur alla Happamiðana, og fær viðkomandi veglegan vinning að launum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á bókasafninu í Nýheimum, laugardaginn 12. september kl.13.  Starfsfólk bókasafnsins
Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir 30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.
Eftir Dagur Snær Guðmundsson 23. júní 2026
Það er ótrúlega gaman að sjá allar minningarnar lifna við og fá innsýn í stemninguna, fólkið og söguna sem Humarhátíðin hefur skapað í gegnum árin.