Frétt um Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar 2026

Sandra Björg Stefánsdóttir • 4. júní 2026

Í fjölda ára hefur Menningarmiðstöð Hornafjarðar borðið börnum í sveitarfélaginu að taka þátt í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar sem fram fer á sumrin. Árið í ár er engin undantekning og hefur Menningarmiðstöðin skipulagt ferðir og allskonar skemmtilegar uppákomur fyrir börnin í sumar.

Barnastarfið fer fram á þriðjudögum kl.13 og tekur alla jafna 2-2 ½ klst. Ávallt verður hist á bókasafninu í Nýheimum og ferðirnar enda á sama stað.


Ferðirnar eru fyrir börn á grunnskólaaldri sem lokið hafa 1. bekk. Yngri börn eru velkomin með í ferðirnar en þá biðjum við foreldri eða forráðamann um að fylgja barninu í ferðunum.


Í ár ferðumst við um víðan völl, bæði innanbæjar og utan og fáum til samstarfs við okkur fjölda fyrirtækja og einstaklinga sem öll stefna að því að gera sumarið ógleymanlegt fyrir börnin.


Sem dæmi má nefna er að fyrsta ferð sumarsins verður farin þriðjudaginn 9. júní og þá brunum við út á Mýrar og heimsækjum Birgi í Fatey og fáum að skoða fjósið og kýrnar. Síðar í sumar munum við fara út í Hrossó í folf (frisbee golf), sigla með Lóðsinum út í Mikley, fara í fuglaskoðun í Óslandið með Bjössa Arnar og gönguferð og yoga með Huldu Laxdal, svo dæmi séu tekin.


Skráning fer fram á netfanginu afgreidslammh@hornafjordur.is og lýkur ávallt sólahring fyrir ferð eða kl.13 á mánudögum. Fyrir fyrstu ferð barns í sumar þarf forráðamaður að fylla út upplýst samþykki þar sem gefið er formlegt leyfi fyrir því að barnið taki þátt í Barnastarfinu.


Eins og gefur að skilja þarf að fylgjast með veðurspá og börnin eiga að koma klædd eftir veðri því mikið er dvalið utandyra. Þá eru börnin beðin um að koma með nesti.


Síðast en ekki síst er vert að taka fram að frítt er í allar ferðir á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í sumar líkt og ávallt áður.


Við hlökkum til að skemmta okkur með ykkur í sumar :)


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.