Sumarlestur 2026

Kristín Vala • 28. maí 2026

Nú þegar sumarið er farið að láta sjá sig er ekki úr vegi að kynna fyrir ykkur Sumarlesturinn en í ár tökum við á móti honum Gúnda Geithafri og hjálpum honum að komast yfir í gróskumikinn haga.

Á bókasafninu okkar í Nýheimum, sem og flestum almenningsbókasöfnum á Íslandi getur þú náð þér í vegabréf með korti af ferðalaginu hans Gúnda. Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og merkja þá við hvert barnið er komið á leið Gúnda í grasleitinni miklu. Við fjórða hvern lestur hafa börnin lesið í klukkustund og lenda á stjörnu. Þá geta lestrarhestarnir gert sér ferð til okkar á bókasafnið, fengið stimpil á kortið sitt og fyllt út happamiða til að setja í lukkupott. Smám saman ná börnin að heimsækja alla áhugaverðu staðina sem Gúndi ferðast um og fá stimpil fyrir. Börnin geta þá með stolti sagt: „Ég fann grasið í Grænuhlíð!“

Í lok sumars munum við halda veglega Uppskeruhátíð þar sem allir þátttakendur fá þátttökuverðlaun og einn heppinn einstaklingur verður dreginn út úr lukkupottinum og fær veglegan vinning.


Við hlökkum svo sannarlega að taka á móti öllum lestrarhestum sveitarfélagsins í sumar og taka þátt í ferðalaginu hans Gúnda geithafurs!


Teikning og hönnun er í höndum Blævar Guðmundsdóttur og nánar upplýsingar um Sumarlesturinn 2026 má finna á www.sumarlestur.is


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.