Búsetuminjar í Austur-Skaftafellssýslu

Sigríður Guðný Björgvinsdóttir • 6. maí 2026

Frá árinu 2020 hefur rannsóknarsvið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, ásamt Þórbergssetri á Hala í Suðursveit, unnið að skráningu búsetuminja frá fyrri tíð í héraði sveitarfélagsins. 

Haldið er úti vefsíðu fyrir þetta tiltekna verkefni, sem hefur slóðina www.busetuminjar.is. Þar má nú þegar finna ýmsan fróðleik um yfirgefin bæjarstæði Suðursveitar og Mýra, þar sem lágreistir tóftarveggir geta verið eini vitnisburðurinn um tilvist býlanna. Upptalningin þar er hvergi nærri tæmandi enda af nægu efni að taka.

Í verkefni sem þessu, sem unnið hefur verið með aðferðafræði fornleifaskráningar, verður til heilmikið gagnasafn. Það byggir m.a. á yfirliti um ritaðar heimildir, vettvangsgögn og ljósmyndir. Á vettvangi er aflað landupplýsingagna; nákvæm uppmæling tófta með GPS tæki ásamt því að minjar eru ljósmyndaðar. Það er gert til að staðfesta nákvæma staðsetningu og umfang minjanna. Myndir upplýsa um útlit minjanna og ekki síst vitna til ástands þeirra. 

Bátanaust í landi Sléttaleitis

Strax í upphafi verkefnisins var lagt upp með að skrásetja minjarnar samkvæmt stöðlum Minjastofnunar Íslands, í þeim tilgangi að skráningin hlyti samþykki stofnunarinnar. Minjastofnun hefur fylgst með framgangi þess nánast frá byrjun, fengið kynningu á efninu og hvatt okkur til dáða. Nú hefur stofnunin samþykkt að taka við þeim vettvangsgögnum sem nú þegar liggja fyrir. Gögn sem þessi eru afar mikilvæg fyrir varðveislu menningarminja og nauðsynleg fyrir alla skipulagsgerð.


Á næstu misserum verður unnið að uppsetningu gagnanna samkvæmt skilareglum Minjastofnunar, ásamt því að halda áfram heimsóknum á yfirgefin bæjarstæði í Lóni, Nesjum og Öræfasveit. 


Frá Selbakka á Mýrum

Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.