Nú í aðdraganda að Humarhátíð þá hefur Héraðsskjalasafnið gert yfir 700 ljósmyndir aðgengilegar á miðlunarvefnum til skoðunar! 📸🦞
Dagur Snær Guðmundsson • 23. júní 2026

Það er ótrúlega gaman að sjá allar minningarnar lifna við og fá innsýn í stemninguna, fólkið og söguna sem Humarhátíðin hefur skapað í gegnum árin.
Við vitum þó að enn leynast margar myndir í albúmum, kössum og skúffum víða um heimili. Ef þú átt myndir af Humarhátíðum – stórar eða smáar stundir – þá þætti okkur afar vænt um að fá að varðveita afrit í safninu og miðla þeim einnig á vefnum.
Endilega hafið samband dagur@hornafjordur.is

Eftir Sigríður Guðný Björgvinsdóttir
•
30. júní 2026
Sjósókn var um aldir einn af mikilvægustu atvinnuvegum Austur-Skaftfellinga og gegndi lykilhlutverki í afkomu heimila. Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar og brim við suðausturströnd Íslands nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best hentuðu hverju sinni.

Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir
•
22. júní 2026
Alþjóðlegi jafnréttiskólinn (GRÓ GEST: Gender Equality Studies & Training Programme under the auspices of UNESCO), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar, er gestgjafi sýningarinnar Aldrei útskrifuð – Ætíð minnst, sem fer fram á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá og með 18. Maí 2026.

Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir
•
4. júní 2026
Í fjölda ára hefur Menningarmiðstöð Hornafjarðar borðið börnum í sveitarfélaginu að taka þátt í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar sem fram fer á sumrin. Árið í ár er engin undantekning og hefur Menningarmiðstöðin skipulagt ferðir og allskonar skemmtilegar uppákomur fyrir börnin í sumar.