Fjölbreytileikavikan á MMH 2026

Vilhjálmur Magnússon • 24. mars 2026

Nú er hin frábæra fjölbreytileika vika hafin og Bókasafn Menningarmiðstöðvarinnar hefur skipulagt þrjá mismunandi viðburði af því tilefni. 

Við riðum á vaðið um síðustu helgi og héldum viðburðinn KVENNABORÐIÐ síðastliðinn laugardag, sem byggt er á sambærilegu verkefni W.O.M.E.N. – samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Eirný Valsdóttir hélt utan um viðburðinn fyrir okkar hönd og fór hann fram úr okkar björtustu vonum. Mætingin var góð og umræðurnar enn betri. Við höfum strax ákveðið að endurtaka leikinn þann 25.apríl n.k. og vonandi verða þetta mánaðarlegir viðburðir um ókomna tíð.

Næstkomandi fimmtudag, 26. mars kl.20, verður annar viðburðurinn okkar haldinn í tilefni af Fjölbreytileika vikunni en það er kynning á bókinni Fröken Dúlla sem fjallar um Jóhönnu Knudsen sem kölluð var Dúlla af ástvinum sínum, en hún var alræmd vegna rannsókna hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. 

Í kjölfar bókakynningarinnar verður boðið upp á umræður með Kristínu Svövu, sagnfræðing og höfund bókarinnar, þar sem við horfum til baka á viðbrögðin við „ástandinu“. Hverjir voru það sem knúðu bæði umræðuna og aðgerðirnar áfram og hverjar voru forsendurnar? Má segja að í grunninn hafi verið um að ræða neikvæða umræðu um kynfrelsi kvenna en líka tilraunir í barnaverndarmálum á meðan það kerfi var á frumstigi?

Því miður hefur kvenfrelsi og fjölbreytileikinn hafa átt undir högg að sækja í heiminum í dag og ekki síður á Íslandi. Okkur á Menningarmiðstöðinni þótti því vert að skoða söguna og skoða hvort við getum ekki lært af henni.

 

Síðasta viðburð Menningarmiðstöðvarinnar í Fjölbreytileikavikunni þarf vart að kynna fyrir Hornfirðingum en síðustu ár höfum við sett upp ljósmynda studio í afgreiðslu bókasafnsins þar sem gestum og gangandi er boðið að fá tekna af sér andlitsmynd. Markmiðið er að sýna hversu frábær, falleg og fjölbreytt við erum hér í Hornafirði. Ljósmyndirnar munu prýða veggi Nýheima næstu vikur eftir að Fjölbreytileikavikunni lýkur.

 

Í lokin viljum við minna á að opnunartími bókasafnsins er eftirfarandi:

  • Mánudagur – fimmtudagur         kl.10-17
  • Föstudagur                                     kl.11-15
  • Laugardagur                                   kl.11-15

 

Við hlökkum til að taka á móti ykkur nú í Fjölbreytileikavikunni sem og alla aðra daga.

Starfsfólk bókasafns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar



Eftir Sandra Björg Stefánsdóttir • 23. október 2026
Fiskimiðin við Suðausturland hafa um aldir verið nýtt af Íslendingum og erlendum þjóðum. Þar á meðal voru franskir fiskimenn, sem sóttu á Íslandsmið á seglskútum, svokölluðum gólettum, allt fram yfir aldamótin 1900. Á hverju vori lögðu skipin í langa og hættulega veiðiferð á Íslandsmiðin. Í mars mátti sjá frá suðurströnd Íslands hvít segl þeirra birtast við sjóndeildarhringinn, líkt og hópur máva sem blakar vængjum sínum við hafflötinn. Þorskurinn var eftirsóttur á mörkuðum í Mið- og Vestur-Evrópu, og útgerðarbæir á norðurströnd Frakklands sendu skip sín til Íslands í von um góðan afla. Veiðarnar gátu þó reynst dýru verði keyptar. Þorskurinn var frönsku sjómönnunum lífsviðurværi en einnig uppspretta sorgar og þjáninga. Seglin og reynsla skipverja voru lítil vörn gegn ofsaveðri, straumum og brimi. Sjóslys voru tíð og talið er að um fjögur hundruð skip, með samtals um fjögur þúsund franska sjómenn innanborðs, hafi aldrei snúið aftur heim af Íslandsmiðum. Þrátt fyrir þessa hörmungarsögu varð oft mannbjörg þegar skip strönduðu við Suðausturland. Hér koma nokkur dæmi af Breiðamerkursandi: Marie Louise frá Dunkerque, 18. apríl 1881 Samkvæmt fréttum í Norðanfara strandaði frönsk skúta í Öræfum, líklega við Bakkafjöru aðfaranótt 18. apríl 1881. Þetta var gólettan Marie Louise og um borð voru tíu menn, sem allir komust lífs af. Ekki var í fyrstu vitað með vissu hvað olli strandinu, en talið var að skipið hefði leitað lands vegna leka. Í frétt blaðsins síðar um sumarið kom fram að skipið hefði verið selt ásamt búnaði fyrir 102 krónur. Það var lítið og hafði ekki aflað, en saltfarmur náðist að mestu óskemmdur. Dimmviðri, þoka og norðaustan vindur, ásamt straumi, munu hafa leitt til slyssins. Skipverjarnir komust sjálfir í land og þaðan til Hnappavalla. Richelieu frá Calais, 16. apríl 1898 Í suðvestan stormi strandaði franska seglskútan Richelieu á Kvískerjafjöru 16. apríl 1898. Skipið var tæplega 39 tonn að stærð og áhöfnin taldi ellefu menn. Þeir komust allir hjálparlaust í land og héldu til Hnappavalla. Frétt í Þjóðólfi greindi einnig frá því að annað franskt fiskiskip hefði sokkið undan Hestgerði í Suðursveit sama dag. Allir skipverjar þess lifðu slysið af og matvælum var bjargað. Skömmu síðar flutti gufuskipið Hjálmar 45 franska skipbrotsmenn frá Hornafirði áleiðis til Frakklands. Agile frá Dunkerque, 9. apríl 1907 Fiskiskútan Agile strandaði á Fellsfjöru, vestan við Jökulsá, 9. apríl 1907. Veður var gott en skyggni lélegt. Björn Pálsson á Kvískerjum sá skipið nálgast land og fylgdist með því þar til það hvarf sjónum hans. Hann hélt að því hefði verið snúið frá landi, en skipverjarnir höfðu ákveðið að sigla því upp vegna þess hve ástand þess var orðið lélegt. Skipið brotnaði þegar það tók niðri. Allir tuttugu mennirnir komust í land og héldu til austurs eftir sandinum. Þeir fóru yfir Jökulsá á undirvarpi og náðu til Reynivalla án áfalla. La France frá Graveline, 10. apríl 1921 Franska skútan La France strandaði á Kvískerjafjöru að morgni 10. apríl 1921. Hún var líklega frá útgerðarbænum Graveline á norðurströnd Frakklands og flutti salt til Reykjavíkur en hafði rekist á blindsker við Tvísker um nóttina. Skemmdirnar voru miklar og skipið var nærri sokkið þegar það tók niðri á útrifi. Áhöfnin, sjö menn, komst í bát og reri til lands við illan leik, rétt austan Eystri-Kvíár. Sáu þeir engin merki mannabyggðar en héldu upp með ánni. Fóru þeir yfir hana á jökli til vesturs og náðu loks til Hnappavalla. Flakið rak síðar upp í fjöruna og var selt, enda ekki unnt að bjarga skipinu.  Skráning menningarminja á Breiðamerkursandi stendur yfir hjá rannsóknarsviði Menningarmiðstöðvar. Skipskaðar sem þessir eru einn þáttur í þeirri sögu sem sandurinn hefur að geyma. Þeim verður gerð betri skil í verkefninu og kynnt í skýrslu og með veggspjaldasýningu á nýju ári.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 23. október 2026
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og tveir starfsmenn byggðasafnsins sóttu í síðustu viku árlegan farskóla FÍSOS á Ísafirði. Þar komu saman fulltrúar flestra safna landsins til að miðla reynslu, efla faglega hæfni og mynda tengsl. Farskólinn er dýrmætur vettvangur símenntunar og samstarfs sem nýtist við að þróa safnastarf um land allt. Yfirskrift farskólans í ár var Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Fjölbreytt erindi og umræður beindu sjónum að því hvernig söfn geta tekið betur á móti ólíkum hópum og skapað aðstæður til þátttöku. Viðfangsefnið á vel við starf Menningarmiðstöðvarinnar, þar sem áhersla er lögð á að menningararfur og safnastarf séu aðgengileg og hafi þýðingu fyrir fjölbreytt samfélag.
Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !