Guðrúnarkviða í Svavarssafni

Maciej Rozanski • 26. júní 2023

Kolsvört kómedía um að vakna í eigin jarðarför

Guðrún vaknar í kistu í eigin jarðarför en kann ekki við að trufla athöfnina. Um það hverfist sagan í kolsvarta gaman-einleiknum Guðrúnarkviða eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur.


Við höfum kannski öll einhvern tímann velt fyrir okkur hvernig væri að fylgjast með okkar eigin jarðarför en í þessu verki tekst Eyrún á við þær vangaveltur, kurteisi og meðvirkni, og ýmis önnur mál, á gamansaman hátt. Einleikurinn verður sýndur í Svavarssafni næsta föstudag (9.júní) klukkan átta, og er ókeypis inn. Eyrún Ósk Jónsdóttir hefur getið sér gott orð sem ljóð- og leikritaskáld, en hún er búsett og uppalin í Hafnarfirði. Einleikurinn á sér langa sögu, hann var fyrst settur upp í leikstjórn Hildar Kristínar Thorstensen og tónlist Ólafs Torfasonar rétt fyrir Covid-faraldurinn. Faraldurinn frestaði útförinni og ýmsum öðrum listviðburðum um skeið þar sem leiklistarhátíðirnar sem áttu að taka við henni voru ekki haldnar. Það mætti því segja að jarðarfarar-gamanleikurinn sé núna uppvakningur, því verkið var sett upp í Gaflaraleikhúsinu nýlega, að þessu sinni í samstarfi með Björk Jakobsdóttur og er farinn aftur að túra. Þessu erum við sem fáum að njóta fegin, og ekki síst eiginmaður Eyrúnar, en hann hefur þurft að þola að hafa líkkistuna heima hjá sér síðastliðin þrjú ár meðan sýningarhléið stóð yfir. Einnig mun Eyrún lesa upp í hádeginu á bókasafni Hornafjarðar klukkan 12:30 á föstudaginn, ásamt Eygló Jónsdóttur.

Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.