Hringfarar í Svavarssafni

Maciej Rozanski • 7. desember 2021

Laugardaginn 9. október síðastliðinn opnaði sýningin Hringfarar í Svavarssafni.

Fjórir listamenn sýna á sýningunni, þau Guðjón Ketilsson, Elsa Dóróthea Gísladóttir, Sólveig Aðalsteinsdóttir og Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir.

Laugardaginn 9. október síðastliðinn opnaði sýningin Hringfarar í Svavarssafni. Fjórir listamenn sýna á sýningunni, þau Guðjón Ketilsson, Elsa Dóróthea Gísladóttir, Sólveig Aðalsteinsdóttir og Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir. Öll eiga verk þeirra í sýningunni það sameiginlegt að nýta sér náttúruleg efnafræðileg ferli og skrásetja umbreytingar.

Guðjón hlaut íslensku myndlistarverðlaunin í fyrra, en hann vinnur gjarnan með fundna hluti og sögur liðinna atburða sem hann skrásetur og endurskipuleggur. Elsa fæst við hverfulleika, sjálfbærni og alkemíu hversdagsins þar sem tíminn er mikilvægt element. Verk Sólveigar kjarnast í kringum náttúruna, jarðefni, gróður, vöxt og umbreytingar, en hún ræktar sinn listræna garð í vinnustofu sinni í Kjósinni. Efnisviðurinn í verkum Guðrúnar heldur áfram að lifa og breytast vegna umhverfisáhrifa.

Sýningin stendur til 28. janúar.


Eftir Tjörvi Óskarsson • 12. október 2026
Lína Langsokks-dagur á bókasafninu á laugardaginn !
Eftir Tjörvi Óskarsson • 6. október 2026
Út úr geymslunni – Náttúrugripasýning barnanna
Eftir Tjörvi Óskarsson • 16. september 2026
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er viðurkennt safn og starfar samkvæmt safnalögum og alþjóðlegum siðareglum safna. Viðurkenningunni fylgja faglegar kröfur um hvernig safnkostur er skráður, varðveittur, rannsakaður og honum miðlað. Þegar við hugsum um safn er sýningarsalurinn líklega það fyrsta sem kemur upp í huga okkar. En sýningin er aðeins hluti af safninu. Á bakvið tjöldin fer fram stór hluti þeirrar vinnu sem gerir okkur kleift að kalla okkur safn. Skráning, rannsóknir, miðlun og ekki síst varðveisla. Stór hluti safnkosts er geymdur í varðveislurýmum og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Safngripir geta nefnilega verið algjörar dramadrottningar. Þeir þola illa sól, vilja helst ekki láta koma mikið við sig, pöddur eru sólgnar í suma þeirra og þeir þurfa að vera geymdir við rétt hita- og rakastig. Eitt mikilvægasta hlutverk safna er að varðveita safnkost til framtíðar. Þá tölum við um forvörslu. Hugmyndin er í grunninn sú að það er betra að koma í veg fyrir skemmdir en að reyna að gera við þær eftir á.