Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Menningarmiðstöð Hornafjarðar og starfssvæði hennar er Sveitarfélagið Hornafjörður. Stofnunin varð til árið 1990 með sameiningu nokkurra safna. Heiti stofnunarinnar var upphaflega Sýslusafn Austur-Skaftafellssýslu en breyttist árið 2001 í Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Árið 2020 voru atvinnu- og ferðamál sameinuð Menningarmiðstöð Hornafjarðar og því er Menningarmiðstöðin sinnir menningu, atvinnu og ferðamálum í sveitarfélaginu.
“Menningarmiðstöðin leggur áherslu á miðlun og fræðslu menningararfs Hornafjarðar með sýningum sínum, skrásetningu og varðveislu til framtíðar. „
Fjölbreytt safnastarf
Innan Menningarmiðstöðvarinnar eru starfrækt sex söfn ásamt atvinnu-, ferða- og rannsóknarsviði sem starfar þvert á einingarnar. Söfnin eru byggða-, sjóminja-, náttúrugripa-, lista-, bóka-, héraðsskjalasafn. Sýningar á vegum safnanna eru mikilvægur þáttur í safnastarfinu og hér leggjum við áherslu á sérstöðu Hornafjarðar og því samfélagi sem er og var. Í dag er opnar sýningar í bókasafninu, Gömlubúð, Verbúðinni í Miklagarði og Svavarssafni og er aðgangur að sýningum Menningarmiðstöðvarinnar frír.
Menningarmiðstöðin leggur mesta áherslu á miðlun og fræðslu menningararfs Hornafjarðar á sýningum sínum, skrásetningu hans og varðveislu til framtíðar. Nýsköpun og þróun til framtíðar á atvinnustarfsemi og ferðamannaiðnaðinum. Einnig er æ ríkari áhersla lögð á rannsóknarstarf og ekki síst miðlun þess starfs til almennings og þátttöku barna og unglinga á þeim vettvangi.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar stendur einnig fyrir barnastarfi á sumrin, þar sem boðið er upp á styttri ferðir um svæðið þar sem krakkar fá tækifæri til þess að kynnast nærumhverfi sínu á nýjan hátt. Einnig hefur verið lestrarátak á bókasafninu sem kallast sumarlestur þar sem krakkar eru hvattir til þess að lesa yfir sumarmánuðina, svo eru veitt hvatningarverðlaun að hausti. Einnig er á bókasafninu barnahorn og unglingahorn, og hvetjum við foreldra eindregið til þess að koma með börnunum á bókasafnið. Við tökum reglulega á móti skólahópum og kynnum þeim fyrir list og sögum og stuðlum að og erum þátttakendur í ýmsum viðburðum í sveitarfélaginu.
Starfandi einingar:
Smellið á plúsana til að sjá opnunartíma deilda!
Bókasafn
Opnunartími
Vetraropnun
1.september - 31.maí
- Mán - Fim
- -
- Fös - Lau
- -
- Sunnudagur
- Lokað
Sumaropnun
1.júní - 31.ágúst
- Mán - Fös
- -
- Lau - Sun
- Lokað
Staðsetning
Nýheimum, Litlubrú 2, 780 Hornafirði
Byggðasafn
Opnunartími
Sýningar á vegum Byggðasafns eru í Gömlubúð
og Miklagarði. Opið alla daga 14-20
Staðsetning
Gamlabúð, Heppuvegi 1, 780 Hornafirði
Gamlabúð
Opnunartími
Opið er frá kl. 14:00 til 20:00 alla daga.
Staðsetning
Heppuvegur 1, 780 Hornafirði
Rannsóknarsvið
Staðsetning
Nýheimum, Litlubrú 2, 780 Hornafirði
Svavarssafn
Opnunartími
Vetraropnun
1.nóvember - 28.febrúar
- Mán - Fös
- -
- Lau - Sun
- Lokað
Vor- og haustopnun
1.mars - 31.október
- Mán - Fös
- -
- Lau - Sun
- Lokað
Sumaropnun
15.maí - 15.september
- Mán - Fös
- -
- Laugardagur
- -
- Sunnudagur
- Lokað
Staðsetning / Location
Nýheimum, Hafnarbraut 27, 780 Hornafjörður, Iceland
Héraðsskjalasafn
Opnunartími
Eftir samkomulagi við safnvörð.
Staðsetning
Nýheimum, Litlubrú 2, 780 Hornafirði