Gamlabúð


opnunartími

Opið er frá 14:00 til 20:00 alla daga

staðsetning

Heppuvegur 1, 780 Hornafirði

hafa samband

Sími: 470 8055


Netfang: gamlabud@
hornafjordur.is


Gömlubúðar hlaðvarpið er hluti af starfinu i Gömlubúð sem rekin er af Menningarmiðstöð Hornafjarðar fyrir sveitarfélagið . Með þáttunum styrkjum við tengslin innan samfélagsins og stuðlum að menningarlegri upplifun.
Hér er hægt að finna hlaðvarpið á ýmsum streymisveitum:


Í Gömlubúð geta allir sem vilja haldið viðburði, en háloftið hefur verið helsti viðburðarstaður hússins. Þar hafa til dæmis verið haldnir fjölmargir tónleikar, bæði með heimamönnum og íslensku tónlistarfólki sem er á ferðinni. Háloftið er einnig mjög vinsælt til fundarhalds af ýmsu tagi, en stærð rýmisins hentar vel fyrir fundi allt að 30 manns.

Á árinu 2026 verður unnið að uppsetningu Kvískerjasýningar í Gömlubúð, sem opnuð verður 14. mars 2027 á 100 ára afmæli Hálfdáns. Þótt langt sé í opnun sýningarinnar verður hægt að taka þátt í undirbúningsferlinu og leggja sitt af mörkum, meðal annars með viðburðum sem bera heitið sýning í vinnslu.

Gamlabúð var reist 1864 við Papós í Lóni. Verslun hófst á Papósi um 1861 og árið 1863 löggilti Friðrik VII. konungur Papós sem verslunarstað. 1864 var Krambúðin reist og þjónaði sem verslunarhús meðan verslun var rekin á Papósi. Eftir að verslun lagðist þar af var húsið flutt til Hafnar og kallað Gamlabúð. Gamlabúð var flutt frá Papósi 1897 og var reist við Hafnarvík, í nágrenni Pakkhúss og Kaupmannshússins. Gamlabúð var aðalverslunarhúsið á Höfn frá upphafi byggðar til 1937. Sölubúð var í austurhluta neðri hæðar en kornvörur, kaffi, sykur of fleira var geymt í sekkjum í vesturhluta neðri hæðar og á lofti. Í kjallara var geymt salt og ýmislegt sem þoldi langa geymslu.
 

Árið 1977 var Gamlabúð flutt á nýjan leik og var húsinu fundinn staður við Sílavík. Árið 1980 opnaði sýning Byggðasafnsins í húsinu og var Gamlabúð miðstöð starfsemi Byggðasafnsins þar til sumarið 2012, þá var hún aftur flutt á sinn gamla stað við höfnina. Árið 2013 var húsið opnað aftur sem gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs en árið 2023 tók Menningarmiðstöð Hornafjarðar við rekstri hússins og í dag er þar rekin upplýsingamiðstöð og sýningar safna miðstöðvarinnar má sjá í húsinu.


Gamlubúð gegnir hlutverki upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn, safns, menningarhúss og fundaraðstöðu fyrir Hornfirðinga og aðra sem vilja nýta húsið.