Byggðasafn

opnunartími
Sýningar á vegum Byggðasafns eru í Gömlubúð og Miklagarði.
Opið alla daga 14-20
staðsetning
Gamlabúð, Heppuvegi 1
hafa samband
Árið 1980 opnaði sýning Byggðasafnsins í húsinu og var Gamlabúð miðstöð starfsemi Byggðasafnsins frá þeim tíma og allt til 2012. Gamlabúð varð í framhaldinu upplýsingamiðstöð ferðamanna og gestamóttaka á vegum Vatnajökuls þjóðgarðs með sýningu unna í samstarfi við safnið. Árið 2025 fékk Menningarmiðstöðin húsið aftur í sínar hendur og vinnur nú að því að setja upp sýningar á vegum Byggðasafnsins aftur en auk þess er húsið viðburða og menningarhús sveitarfélagsins.
Byggðasafni er ætlað að safna minjum sem lýsa mannlífi héraðsins, það er heimilishaldi, félagslífi, samgöngum og atvinnuháttum, jafnt til sjávar og sveita. Áhersla er lögð á skaftfellskt efni og þá þætti sem einkennt hafa þetta byggðarlag eða gert aðstæður þess frábrugðnar aðstæðum annarra byggðarlaga.
Starfsfólk Byggðasafns hefur umsjón með safnkosti náttúrugripasafns, en hlutverk Náttúrugripasafns er að safna gripum sem tengjast náttúru svæðisins. Einnig að vinna að náttúrurannsóknum og umhverfisvernd í samvinnu við náttúruverndarsamtök og stofnanir, skrá muni og náttúruminjar og halda til haga upplýsingum um þessi atriði. Náttúrugripasafni er ætlað að vernda minjar og ná fram heildstæðri mynd af náttúru svæðisins. Söfnunarflokkar eru lífríki, bergmyndanir og gróðurfar.
Byggðasafn og Náttúrugripasafnið starfa eftir stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Byggðasafnið hefur hlotið viðurkenningu Safnaráðs, og einnig starfar það með öðrum söfnum að Sarpi, þar sem hægt er að nálgastupplýsingar um safnkostinn.